Kynbætur á yndisplöntum fyrir Ísland. Málþing föstudaginn 4. apríl

Garðyrkjufélag Íslands, Skógræktarfélag Íslands og Landbúnaðarháskóli Íslands boða til málþings um kynbætur á yndisplöntum fyrir Ísland. Málþingið er haldið föstudaginn 4. apríl frá kl. 9:30 til 16:30 í fundarsal Garðyrkjufélagsins, Síðumúla 1.

Markmið málþingsins er að vekja áhuga ræktunarfólks á plöntum sem ætlaðar eru til yndis og nytja og eru markvisst aðlagaðar fyrir íslenskar aðstæður með kynbótum. Á málþinginu verður fjallað um  reynslu sem þegar er fengin af plöntukynbótum á Íslandi og hugað að framtíðarmöguleikum hérlendis fyrir garðyrkju og skógrækt.  Hér er einstakt tækifæri fyrir allt áhugafólk um framfarir í plöntuúrvali að kynna sér hvaða leiðir eru færar til kynbóta og læra af reynslu annarra.

Í upphafi málþingsins flytur kanadíski grasafræðingurinn Claire Laberge erindi um sögu kynbóta og framfara í ræktun yndisplantna í Kanada á síðustu öld. Reynsla Kanadamanna af kynbótum á garðrósum og ávaxtatrjám fyrir mjög erfið ræktunarskilyrði á gresjum Kanada getur verið okkur fyrirmynd og hvatning því þar hafa orðið gífurlegar framfarir á síðustu áratugum. Hafa Íslendingar þegar notið árangurs af því starfi, ekki síst í rósarækt,  þótt ræktunarskilyrði séu hér að mörgu leyti allt önnur og kalli á eigin tilraunir til aðlögunar á eftirsóknarverðum tegundum. Á ráðstefnunni verður fjallað um reynslu úr kynbótaverkefnum hérlendis á vegum einstaklinga og stofnana sem vísað geta veginn fram á við.

Meðal spurninga sem teknar verða til umræðu er hvernig svo fámenn þjóð getur með skipulegum og hagkvæmum hætti tekist á við tímafrek langtímaverkefni sem plöntukynbætur eru. Velt verður upp möguleikum á samvinnu áhugafólks og samtaka þeirra við opinberar fagstofnanir sem veitt geta leiðsögn og haldið utan um þekkingu sem safnast og miðlað henni til framtíðar.

Málþingið er haldið í húsakynnum Garðyrkjufélags Íslands í Síðumúla 1 (gengið inn frá horninu við Ármúla). Mæting og afhending gagna hefst kl. 9:30 en þingið verður sett kl. 10:00 og stendur til kl. 16:30. Þátttökugjald er kr. 9.900 fyrir utanfélagsmenn Garðyrkjufélags og Skógræktarfélaga en kr. 6.900 fyrir félagsmenn.
Skráning er á netfang Garðyrkjufélagsins:  gardurinn @gardurinn.is

................................
 

Dagskrá
Fundarstjóri: Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands
09:30 – 10:00    
Mæting og afhending gagna
10:00 – 10:05
Setning - Þuríður Backman formaður Garðyrkjufélags Íslands
10:05 – 10:15
Til hvers kynbætur á garðplöntum á Íslandi? -  Vilhjálmur Lúðvíksson
10:15 – 11:00
Overview of the Prairie Fruit Breeding Program and the Rose Breeding Program in Canada. The Objectives and Visions for the Future. Claire Laberge, grasafræðingur við Grasagarðinn í Montreal
11:00 – 11:25
Aðferðafræði við trjákynbætur á Íslandi – Aðalsteinn Sigurgeirsson
11:25 – 11:40
Kynbætur á alaskaösp -  Halldór Sverrisson
11:40 – 12:00
Prófanir á lerkinu ´Hrym´. Hlutverk áhugamanna við prófanir á kynbættum efniviði -  Bergþóra Jónsdóttir og Þröstur Eysteinsson

12:00 – 13:00    Hádegisverður

13:00 – 13:30
Kynbætur á birki  - Fyrirmynd að aðkomu áhugafólks – Þorsteinn Tómasson
13:30 – 13:50
Trjáræktarklúbburinn – Tegundir og yrki til prófunar á Íslandi- Reynsla af félagsstarfi  - Eggert Aðalsteinsson
13:50 – 14:10
Hlutverk Grasagarðs Reykjavíkur  í söfnun og miðlun upplýsinga um heppilegan plöntuefnivið fyrir íslenskar aðstæður - Hjörtur  Þorbjörnsson
14:10 – 14:25
Íslensk jarðarber – kortlagning uppruna og eiginleika – Hrannar Smári Hilmarsson
14:25 – 14:50
Nýi fjallaþinurinn,  - kynbótaverkefni - Brynjar Skúlason

14:50 – 15:10    Kaffihlé

15:10 – 15:30
Kynbætur á rósum - reynsla og vegvísir til framtíðar – Jóhann Pálsson
15:30 – 15:45
Reynslusaga af kornkynbótum. Er hægt að yfirfæra hana yfir á aðrar tegundir?  Jónatan Hermannsson
15:45 – 16:00
Samantekt og framtíðarsýn um plöntukynbætur á Íslandi - Guðríður Helgadóttir
16:00 – 16:30
Umræður og fyrirspurnir
16:30
Þinglok

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image