Kennari í starfsmenntanámi hjá Landbúnaðarháskóla Íslands

Laust er til umsóknar starf starfsmenntanámskennara í búfræði hjá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Hlutverk Landbúnaðarháskóla Íslands er að skapa og miðla þekkingu á sviði sjálfbærrar nýtingar umhverfis og auðlinda.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með áföngum sem tengjast jarðrækt, vélum og bútækni

  • Skipulag verklegrar kennslu og verkefna

  • Námsmat og endurgjöf til nemenda

  • Vinna sjálfstætt og í hópum við uppfærslu kennsluskráa og gerð nýrra áfanga.

  • Þátttaka í rannsókna- og nýsköpunarstarfi

  • Þátttaka í faglegu þróunarstarfi og uppbyggingu innan skólans

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi

  • Hagnýt reynsla og þekking á ýmsum sviðum landbúnaðar og iðnaðar

  • Áhugi á miðlun þekkingar og kennslufræðum

  • Góð tölvukunnátta

  • Geta til að vinna sjálfstætt og sem hluti af hóp

  • Samstarfshæfni og lipurð í samskiptum

  • Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 28.11.2025

Nánari upplýsingar veitir

Eyjólfur Guðmundsson

Tölvupóstur: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 4335000

Guðmunda Smáradóttir

Tölvupóstur: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Sími: 4335000

Sækja um starf

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image