Jóhannes Kristjánsson undirritaði í gær starfssamning við Hvanneyrarbúið. Samkvæmt samningnum tekur Jóhannes við sem bústjóri frá 1 .apríl nk. Samhliða hefur Jóhannes sagt starfi sínu lausu við Landbúnaðarháskóla Íslands.
Jóhannes er með meistaragráðu í búvísindum og hefur starfað sem kennari við Landbúnaðarháskólann frá árinu 2015. Hann tekur við bústjórastarfinu af Agli Gunnarssyni sem hefur gegnt bústjórfastarfinu síðastliðin 10 ár.
Við þökkum Jóhannesi kærlega fyrir samstarfið við Landbúnaðarháskóla Íslands og hlökkum til að starfa með honum áfram á nýjum vettvangi. Jafnframt er Agli þakkað fyrir hans góða starf í gegnum tíðina og óskum honum um velfarnaðar á nýjum vettvangi.