Jafnréttisvika LbhÍ

Næsta vika er tileinkuð jafnrétti hjá öllum háskólum landsins. Landbúnaðaháskólinn tekur þátt og hefur jafnréttisráð og nemendafélagið útbúið plaggöt með ýmsum tölulegum staðreyndum sem snúa að jafnrétti og hanga þau uppi fyrir framan matsalinn nemendum og starfsfólki til upplýsinga. Plaggötin munu hanga upp alla vikuna. Jafnfram er hægt að skrá niður á blað hvers konar jafnrétti ykkur finnst mikilvægast að berjast fyrir. 

Jafnréttisráðið óskar ykkur gleðilegrar jafnréttisviku.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image