Hafrar í Gunnarsholti. Mynd Hrannar Smári Hilmarsson

Hafrar í Gunnarsholti. Mynd Hrannar Smári Hilmarsson

Jaðarhafrar – Aðlögun hafra að norðlægum slóðum

Verkefnið Oat Frontiers, sem kalla mætti Jaðarhafrar á íslensku, er alþjóðlegt verkefni styrkt af Interreg-NPA sjóðnum sem Landbúnaðarháskóli Íslands tekur þátt í. Markmið verkefnisins er að efla hafrarækt á norðlægum slóðum sem eru skilgreind jaðarsvæði.

Möguleikar hafra til þroska eru ekki full nýttir á þessum svæðum en til þess að svo verði þarf ráðist í prófun nýrra yrkja, þróun yrkja og leiðir fundnar til að nýta þau staðbundið.

Verkefnið snýr að því að prófa yrki sem eru þegar til með skipulögðum tilraunum á mismunandi stöðum sem ná yfir breytileika vaxtarumhverfa innan jaðarsvæðanna. Þá verða þróaðar aðferðir sem plöntukynbótafræðingar geta notað sem verkfæri til yrkjaþróunar sem munu gagnast fyrir norðlæg svæði í framtíðinni. Samtímis geta þessi verkfæri verið notuð til þess að takast á við öfgakendar aðstæður sem tengjast loftslagsbreytingum og til þess að auka gæði hafra. Til þessara verkfæra telst skilningur á eiginleikum, þar á meðal viðbragð við daglengd, þroska, sjúkdómsþol og strástyrk.

Einnig snýr verkefnið að því að kynna nýjar arfgerðir í hafrakynbótaverkefni, sem geta nýst til að bæta bæði þessa eiginleika og aðra mikilvæga gæðaeiginleika. Verkefninu er einnig ætlað að efla samstarf þeirra fyrirtækja og stofnana sem bera ábyrgð á hafrakynbótum og hafrarannsóknum ásamt því að skipuleggja viðburði með bændum, frumkvöðlum og öðrum hagaðilum til að deila upplýsingum og ræktunaraðferðum, og þannig mynda tengsl til að takast á við breytingar á staðbundinni kornræktun.

Hafrar í Norður-Noregi. Mynd Hilde Halland

 

Fræðsla og miðlun

Í tengslum við verkefnið eru skipulagðir átta svokallaðir spildudagar í fjórum mismunandi löndum. Hér á Íslandi verður spildudagur haldinn í bland við vinnustofu þann 8. oktober 2024. Áhugasamir geta skráð sig hér. Einnig er hægt að fylgjast með verkefninu á Facebook síðu Jarðræktarmiðstöðvar LBHÍ og á X. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verkefnisins.

Hafra sérfræðingarnir

Eitt af markmiðum Interreg-NPA sjóðsins er að auka heildarfjölda frumkvöðla með alþjóðasamstarfi til að þróa lausnir fyrir nær samfélagið, sem eru oft dreifbýl svæði og hafa takmarkaða frumkvöðlagetu. Jaðarhafrar er samstarfsverkefni þriggja Norræna plöntukynbóta fyrirtækja sem hafa mikla þekkingu á kynbótum hafra til þroska, þriggja norður evrópskra rannsóknastofnana og fjögurra háskóla með einstaka kunnáttu á sviðinu. Auk þessara tíu samstarfsaðila höfum við fjöldan allan af hagaðilum sem tengjast þessari vinnu. Meðal annars bændasamtök á svæðinu, skóla og ráðgjafa í Evrópu en líka í Norður Ameríku.

Fréttabréf

Hægt er að fræðast nánar um samstarfsaðila verkefnisins og fá fréttabréf með því að skrá sig hér: Skráningarhlekkur.

Á Íslandi er það Landbúnaðarháskóli Íslands sem tekur þátt í verkefninu sem er unnið við Jarðræktarmiðstöð LbhÍ. Tilraunir eru á Hvanneyri í Andakíl og í Gunnarsholti á Rangárvöllum þar sem tilraunirnar verða til sýnis.

Samstarfsaðilar

  • Landbúnaðarháskóli Íslands
  • Lund University
  • Natural Resources Institute Finland (Luke) (lead)
  • Norwegian University of Life Sciences
  • Norwegian Institute of Bioeconomy Research (Nibio)
  • Lantmännen Graminor AS
  • Teagasc - Irish Agriculture and Food Development Authority
  • University College Dublin
logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image