Bs nám í landslagsarkitektúr hefur hlotið gæðavottun frá IFLA Europe. Nemendur á vinnusal á Hvanneyri

IFLA vottun á námi í landslagsarkitektúr

Hin Alþjóðlegu samtök landslagsarkitekta, Evrópa, IFLA Europe, hafa nú veitt brautinni Landslagsarkitektúr Bs gæðavottun á náminu. Margarida Cancela d‘Abreu, varaforseti menntanefndar IFLA Europe sendi bréf þess efnis sem staðfestir að námið uppfyllir kröfur félagsins til grunnnáms í Landslagsarkitektúr.

Í upphafi árs staðfesti menntamálaráðuneytið breytingu á nafni brautarinnar í Landslagsarkitektúr sem áður hét Umhverfisskipulag. Félag íslenskra landslagsarkitekta, FÍLA hvatti til nafnabreytingarinnar.

Kristín Pétursdóttir brautarstjóri landslagsarkitektúrs segir „Þetta er mikilvægur gæðastimpill fyrir námið og framtíð hennar. Nafnabreytingin hefur einnig haft mikið að segja fyrir okkur. Námið er mun sýnilegra. Nemendum fjölgaði mikið í haust og hefur starfið farið virkilega vel af stað. Við upplifum einstakan áhuga frá sérfræðingum úr atvinnulífinu til að koma á Hvanneyri og sinna gestakennslu sem er að sjálfsögðu mikill stuðningur við starfið.

Þá höfum við fengið til starfa með okkur Dr. Samaneh Nickayin, landslagsarkitekt frá Íran sem hefur reynslu bæði úr hinum akademíska heimi og af hönnunarverkefnum af stofum. Hún hefur starfað víða um heim en að mestu frá Róm á Ítalíu. Nú erum við að einblína á að byggja upp rannsóknarstarf brautarinnar innan landslagsarkitektúrs sem er mikilvægt fyrir þróun fagsins. Það eru spennandi tímar framundan og hvetjandi að finna áhugann á náminu frá samfélaginu“.

Image
Nemendur í landslagsarkitektúr vinna á sal
logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image