Hlýnandi loftslag eykur tegundafjölda plantna á Vatnajökli

Vel heppnuð rannsóknarferð á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands og Náttúrufræðistofnunar Íslands í jökulsker í Breiðamerkur- og Vatnajökli fór fram dagana 8-11 ágúst  síðastliðinn. Megintilgangur ferðarinnar var að greina háplöntur, mosa og fléttur í föstum reitum í Káraskeri, Bræðraskeri og Maríuskeri sem eru um 7-15 km inn í Breiðamerkurjökli og gera þar ýmsar jarðvegsmælingar. Að auki var farið í Systrasker sem kom upp úr jökli í kringum 2010 og nýtt jökulsker sem kom upp í nágrenni Systraskers núna í sumar, sem kalla mætti Grannasker, og síðan í jökulskerið Máfabyggðir sem er í Vatnajökli ofan Breiðamerkurjökuls.

Háskóli Íslands
Nýtt jökulsker að koma upp úr Breiðamerkurjökli núna í sumar. Það er í næsta nágrenni Systraskers og mætti nefna það Grannasker.

Þessi sker mynda aldursseríu, Máfabyggðir hafa staðið upp úr jökli frá lokum síðasta kuldaskeiðs Ísaldar, en Kárasker kom upp úr jöklinum 1935, Bræðrasker árið 1961, Maríusker haustið 2000, Systrasker í kringum 2010 og Grannasker sumarið 2016.

Reglulega hefur verið fylgst með breytingum á gróðurfari Káraskers og Bræðraskers frá árinu 1965, en þá hóf Eyþór Einarsson grasafræðingur vöktun á föstum rannsóknareitum í samstarfi við bræðurna á Kvískerjum í Öræfum. Starri Heiðmarsson grasafræðingur við Náttúrufræðistofnun Íslands og Bjarni Diðrik Sigurðsson frá Hofsnesi í Öræfum og prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands tóku svo við verkefninu 2005. Vöktunin á þessum föstu rannsóknareitunum hefur því staðið í rúm 50 ár samfellt. Maríusker kom upp úr jöklinum árið 2000 og var fyrst heimsótt 2002 af Kvískerjabræðrum, en þá höfðu engar plöntur numið þar land. Árið 2005 voru svo settir út fastir mælireitir sem fylgst hefur verið með síðan. Þetta eru mjög áhugaverðar rannsóknir á landnámi gróðurs á einöngruðum „eyjum“, sem líkja má við ef Surtsey ætti sér tvær eldri og yngri systur.

Háskóli Íslands
Ný og óvænt plöntutegund fannst bæði í Bræðraskeri og Káraskeri, en það er burkninn þúsundblaðarós sem annars vex bara á Norðurlandi.

Tegundafjöldi háplantna í eldri skerjunum einnig svipaður og hann er orðinn í Surtsey, en þar finnast nú á lífi 61 tegund háplantna, 53 árum eftir að eyjan myndaðist. Bræðrasker sem er líkast Surtsey í aldri, eða 55 ára, hefur 60 tegundir háplantna, Kárasker sem er 81 árs hefur 71 tegund, en Maríusker sem er yngra hefur 37 tegundir, Systrasker sem er í kringum sex ára hefur 13 tegundir og Grannasker engar. Hraði landnáms á þessum jökulskerjum er því mjög sambærilegur við Surtsey, þrátt fyrir að þau gróðursamfélög sem myndast séu mjög ólík.

Gömul jökulsker eins og Máfabyggðir bjóða upp á einstakar aðstæður til að meta áhrif loftslagsbreytinga þar sem um ósnortið land er að ræða sem aldrei hefur verið beitt né nytjað á annan hátt af mönnum. Slík landnýtingarsaga gerir túlkun á áhrifum nýlegra loftaslagsbreytinga á  gróðurfar dagsins í dag erfiða á nær öllu Íslandi og því eru staðir eins og Máfabyggðir einstaklega áhugaverðir. Hópur grasafræðinga heimsótti Máfabyggðir árið 1979 og því er gróðurfar þeirra vel þekkt frá þeim tíma. Þá fundust þar 46 tegundir háplantna, en eftir tvær heimsóknir þangað í ágúst 2012 og 2016, þá er ljóst að í dag vaxa þar 52 tegundir háplantna. Tegundafjöldi hefur sem sagt aukist um 13% og það er því ljóst að gróðurmörk eru að breytast með hlýnandi loftslagi og fleiri plöntutegundir geta núna vaxið á jökulskerjum uppi á Vatnajökli en fyrir 35 árum.

Háskóli Íslands
Leiðangursmenn frá v. Starri Heiðmarsson, Bjarni Diðrik Sigurðsson og Mariusz Wierzogon. Máfabyggðir sjást í baksýn.

 

Háskóli Íslands
Horft niður til Jökulsárlóns ofan af Breiðamerkurjökli.

 

Texti og myndir: Bjarni Diðrik Sigurðsson.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image