Hermann Georg Gunnlaugsson, landslagsarkitekt tók formlega við stöðu námsbrautastjóra brautarinnar Landslagsarkitektúr BS í byrjun júlí. Hermann mun leysa Kristínu Pétursdóttur af þar sem hún fer í árs leyfi. „Góð aðsókn er á fyrsta árið og glæsilegur hópur af áhugasömum nemendum á leið á annað og þriðja ár svo framtíðin er björt hjá brautinni“ sagði Kristín þegar Hermann tók við.
Kristín Pétursdóttir t.v. heldur í árs leyfi og við brautarstjórn landslagsarkitektúrs tekur Hermann Georg Gunnlaugsson.