Heimsókn frá nemendum í Varmahlíðarskóla

Landbúnaðarháskóli Íslands fékk skemmtilega heimsókn nýlega frá nemendum í Varmahlíðarskóla í Skagafirði. Voru þar á ferð krakkar í níunda og tíunda bekk sem sátu landbúnaðarnámskeið sem boðið var upp á sem valfag við skólann. Það voru nemendurnir sjálfir sem fengu þá hugmynd að fá að koma í heimsókn í LbhÍ á Hvanneyri til að kynna sér skólann, aðstæður og þá búfræðinámið sérstaklega. Eftir námskynningu og hádegismat fengu nemendur kynningu hjá ábúendum á fjárbúinu Hesti, hjá reiðkennara á Mið-Fossum og kynningu hjá fjósameistara í Hvanneyrarfjósi.

Krakkarnir voru áhugasöm og höfðu um margt að spyrja og spjalla. Þökkum við þeim kærlega fyrir heimsóknina.

Háskóli Íslands
Rebekka, nemendi í Umhverfisskipulagi, sýndi módeltillögu sem hún gerði af sundlaugargarði skólans

Háskóli Íslands
Snædís Anna, ábúandi á Hesti, fræddi nemendur m.a. um fjárhúsabygginguna.

Háskóli Íslands
Hafþór, fjósameistari, fékk ótal spurningar frá krökkunum.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image