UNIgreen háskólanetið fundar í Almeria háskóla

Yfir 100 manns frá háskólunum átta í samstarfsnetinu komnu saman og funduðu í húsakynnum Almeria háskólans

Gríðarleg tækifæri í menntun á sviði landbúnaðar og lífvísinda

Frá 23. til 25. október 2023 fór fram allsherjarfundur í Háskólanum í Almería á Spáni þar sem yfir hundrað sérfræðingar frá átta evrópskum lífvísindaháskólum komu saman undir merkjum UNIgreen samstarfsins. Landbúnaðarháskóli Íslands er einn af þessum átta háskólum, og sóttu fulltrúar á breiðu sviði starfsemi háskólans viðburðinn, meðal annars þeir sem vinna að alþjóðasamskiptum, á kennslusviði, endurmenntun, tölvutækni, rannsóknum og almannatengslum.

 

UNIgreen háskólanetið miðar að því að endurhugsa menntun í landbúnaði, lífvísindum og líftækni til að mæta áskorunum samtímans og stuðla að grænni umbreytingu. Hugmyndafræði samstarfsins er grænn, evrópskur háskóli sem skuldbindur sig til að finna lausnir til framtíðar. Öll erum við að kljást við sömu mikilvægu spurningarnar um það hvernig framleiða megi matvæli á sem sjálfbærastan hátt, með nýsköpun að leiðarljósi.

 

Starfsfólk LBHÍ sem tekur þátt í innri vinnuhópum. F.v.: Eva Hlín Alfreðsdóttir, alþjóðaskrifstofa, Áshildur Bragadóttir endurmenntunar- og nýsköpunarstjóri, Jóhanna Gísladóttir lektor, Gunnhildur Guðbrandsdóttir, kennsluskrifstofa, Utra Mankasingh verkefnastjóri, Eva Símonardóttir, tölvuþjónusta, Rósa Björk Jónsdóttir, markaðs- og kynningarsvið, Christian Schultze rannsókna- og alþjóðafulltrúi. Öll eru þau fulltrúar í mismunandi vinnuhópum og eru Jóhanna og Christian einnig í yfirstjórn netsins og síðan stýra Christian og Utra sínum vinnuhóp um gæðamál og endurgjöf.

 

Ljóst er að í samstarfinu felast gríðarleg tækifæri fyrir nemendur og starfsfólk LbhÍ að stunda nám, afla sér þekkingar og fara í samstarf við þá evrópsku skóla innan samstarfsins, í Frakklandi, á Ítalíu, Spáni, í Búlgaríu, Portúgal, Póllandi og Belgíu. Nú þegar er verið að móta verkferla til að hvetja nemendur til að stunda nám við samstarfsháskóla innan UNIgreen háskólanetsins. Slík samvinna stuðlar ekki aðeins að fjölbreytilegu námsumhverfi heldur hraðar það miðlun á rannsóknum og aðferðum.

Sérstök áhersla er á að auka og efla framboð doktors- og meistaranáms á fagsviðum samstarfsins, auk þess að skapa öflugar tengingar við atvinnulífið í gegnum nýsköpun. Stefnan er að bjóða upp á fyrsta doktorsnámið haustið 2024 með áherslu á landbúnaðarvísindi og tækni. Þá verður komið á fót sameiginlegum prófgráðum þar sem sérfræðiþekking og styrkleikar hvers háskóla fyrir sig mun spila mikilvægt hlutverk svo nemendur öðlist hagnýta þjálfun á sínu sérsviði. Það þýðir að ef rannsóknarinnviðir okkar standi hinum háskólunum framar á tilteknu sviði getum við fengið til okkar alþjóðlega nemendur sem þjálfast á því sviði, og öfugt.

Landbúnaður á Íslandi stendur á krossgötum og þetta samstarf mun efla menntun á sviðinu ásamt því að auka tækifæri og þróun nútímatækni í íslenskum landbúnaði.

 

Allir þátttakendur háskólanna átta stilltu sér upp til hópmyndatöku.

Vefsíða UNIgreen háskólanetsins

Greinin birtist í Bændablaðinu nánar á bbl.is

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image