TIlraunir á vaxtartapi blómkáls af völdum kálflugulirfa. Mynd frá www.islenskt.is

Grein númer tvö í hefti 32/2019 var að koma út í alþjóðlega vísindaritinu Icelandic Agricultural Sciences

Grein númer tvö í hefti 32/2019 var að koma út í alþjóðlega vísindaritinu Icelandic Agricultural Sciences. Greinin, Effects of reduced water availability and insecticide on damage caused by cabbage root fly larvae, er eftir þau Abdul-Salam Mahamud Baba, Isabel C Barrio og Guðmund Halldórsson.

Fjallað er um tilraun þar sem könnuð voru áhrif úrkomu á vaxtartap blómkáls af völdum kálflugulirfa. Í helmingi tilraunareita var líkt eftir þurrkum með því að breiða plastdúk yfir reiti og í hinum helmingi reita var úrkoma aukin með vökvun. Helmingur reita af hvorri rakameðferð var varinn gegn kálflugu með skordýraeitri. Marktækt fleiri kálflugulirfur fundust á rótum blómkáls í reitum þar sem líkt var eftir þurrki en í reitum með aukinni úrkomu. Nær engar lirfur fundust í reitum þar sem eitrað var gegn kálflugu.

Uppskera var mest í reitum þar sem kálflugulirfum var eytt. Á óvart kom að uppskera var meiri í reitum þar sem var líkt eftir þurrkum en í reitum með aukinni úrkomu, hugsanlega vegna áhrifa plastyfirbreiðslna á vöxt. Það er langt síðan vísindagrein hefur birst um garðrækt og hér er skemmtilegt innlegg og minnir okkur á mikilvægi þessarar greinar og að rannsókna á þessu sviði er bráðnauðsynleg.

Greinina má nálgast hér

Þorsteinn Guðmundsson
ritstjóri IAS
www.ias.is

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image