Góður dagur sumardaginn fyrsta á Reykjum

Hafsteinn Hafliðason hlaut heiðursverðlaun garðyrkjunnar 2018
Orri Freyr Finnbogason handhafi hvatningaverðlauna garðyrkjunnar ásamt Björgvini Erni og Kristjáni Þór Júlíussyni
Guðríður Helgadóttir tekur við umhverfisverðlaun Ölfuss fyrir hönd LbhÍ
Nemendur 7. bekkja Grunnskólans í Hveragerði taka við umhverfisverðlaun Hveragerðis úr hendi Sigurðar Inga Jóhannsonar

Um 3.500 gestir heimsóttu Reyki á sumardaginn fyrsta á opnu húsi í gær. Löng hefð er fyrir opnu húsi þennan dag og er fólki boðið að „sækja sér sumarið“ þar sem gróður í gróðurhúsum er farin á dafna á þessum tíma. Fjölbreytt dagskrá var í boði fyrir alla aldurshópa og var meðal annars hægt að kaupa íslenskt grænmeti og plöntur og þá var sölubásar með handverk og garðyrkjutengdar vörur. LbhÍ stóð fyrir kynningu á öllu námi við skólann og þá var einnig kynning á styttri námskeiðum við endurmenntunardeild.

Hátíðardagskrá var í garðskálanum þar sem umhverfis- og garðyrkjuverðlaunin 2018 voru veitt. Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar 2018 hlaut Orri Freyr Finnbogason en hann starfar í dag við „arborisma“ sem er alþjóðlegt heiti þeirrar starfsgreinar að klifra í trjám í klifurbúnaði í þeim tilgangi að snyrta eða fella tré. Orri Freyr, arboristi, er einn af fáum íslendingum sem hafa sérhæft sig í trjáklifri en ljóst er að þörfin fyrir þessa tækni er orðin umtalsverð. Orri Freyr hefur lagt mikla áherslu á að farið sé að ítrustu öryggiskröfum í hans fagi og er það til fyrirmyndar. Orri Freyr rekur í dag sitt eigið fyrirtæki, Trjáprýði, sem sérhæfir sig í trjásnyrtingum, trjáfellingum og grisjun. Arborismi er ný atvinnugrein og verður spennandi að sjá hvernig hún þróast á næstu árum.

Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjumaður, hlaut heiðursverðlaun garðyrkjunnar.

Landbúnaðarháskóli Íslands hlaut umhverfisverðlaun Ölfuss í ár og afhenti Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra þau verðlaun.

Nemendur í 7. bekk Grunnskólans í Hveragerði hlutu umhverfisverðlaun Hveragerðis árið 2018. Í umsögn um verðlaunin segir m.a. að nemendurnir hafi í fjölda ára tekið að sér að hreinsa rusl í bænum í fyrstu viku hvers mánaða á meðan að skólinn starfar. Er ruslatínslan hluti af fjáröflun bekkjarins fyrir ferðalög í lok vetrar og greiðir sveitarfélagið þeim samkvæmt samning sem hefur staðið í tæplega 30 ár. Þannig hafa nemendur sagt sitt að mörkum að halda bænum snyrtilegum. Þó að þessi verðlaun félli nemendum í 7. bekk skólaárið 2017 – 2018   í skaut að þessu sinni er litið svo á að verðlaunin sé til allra þeirra fjölmörgu sjöundu bekkinga sem á undan hafa komið og staðið sig með prýði en einnig að þau virki sem hvatning til komandi sjöundu bekkinga sem vonandi munu halda þessari frábæru en jafnframt ákaflega nytsömu hefð á lofti. Sigurður Ingi afhenti verðlaunin.

Gaman er að segja frá því að útskriftarnemendur garðyrkjunáms á Reykjum 2018 færðu kennurum sínum linditré að gjöf.

Eru starfsmenn skólans sérlega ánægðir og þakklátir gestum fyrir komuna og vonast til að sjá sem flesta á Reykjum aftur að ári.

Gleðilegt sumar!

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image