Í lok ágúst komu nemendur NÚ-skólans í Hafnafirði í námsferð á Hvanneyri. NÚ er sjálfstætt starfandi grunnskóli fyrir 8. til 10. bekk sem skapar sér sérstöðu með því að leggja áherslu á íþróttir, vendinám og sjálfræði nemanda. Ferðin á Hvanneyri var partur af hópefli skólans og var ferðin „tæknilaus“ en skólinn gefur sig fyrir að vera tækniskóli þar sem 90% af öllu kennsluefni er rafrænt og nánast enginn pappír til staðar. Ragnar Frank Kristjánsson, lektor í umhverfisskipulagi við LbhÍ aðstoðaði kennara NÚ-skólans hér á Hvanneyri og sagði þeim sögu staðarins og staðhætti.
Gísli Rúnar Guðmundsson, skólastjóri NÚ, var mjög ánægður með dvölina og sagði að aðstaða á Hvanneyri til útikennslu væri til fyrirmyndar og að dvöl á Hvanneyri sé í raun ein risastór kennslustund í náttúrufræði, sögu og landafræði Íslands. „ Sveitaloftið, náttúran og samveran mótar einstaka upplifur fyrir alla og sérstaklega nútíma borgarbarn sem færi að öllu jöfnu fá tækifæri til að njóta“, segir Gísli sem skorar jafnframt á sveitarstjórn Borgarbyggðar að gera betur í því að kynna þetta svæði svo fleiri geti fengið að njóta þess.
Meðal viðfangsefna Landbúnaðarháskóli Íslands er sjálfbærar landnýting og umhverfis- og náttúrufræði sem fellur vel að stefnu NÚ skólans. Þá er LbhÍ með samstarfssamning við leikskólann Andabæ og Hvanneyrardeild Grunnskóla Borgarfjarðar um m.a. náttúrufræðikennslu og kennslu í umhverfisfræðum og skipulagi. Um árabil hefur þessi samvinna verið á milli skólastiganna á Hvanneyri og gert þeim kleift að nýta þá sérstöðu sem hver og einn býr yfir.
Hér eru nokkrar myndir frá heimsókninni.