Frá upphafi árs 2020 starfar skólinn undir hatti UNESCO sem hluti af Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, sem einnig er nefnd GRÓ. Landgræðsluskólinn er hýstur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og starfar í nánu samstarfi við Landgræðsluna.
Leitað er að öflugum og jákvæðum stjórnanda í krefjandi starf. Forstöðumaður Landgræðsluskólans ber ábyrgð á stjórnun, stefnumótun og rekstri skólans, sem og gæðum og skipulagningu náms sem skólinn stendur fyrir.
Um er að ræða fullt starf með starfsstöð í Reykjavík. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og viðkomandi stéttarfélags. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Óskað er eftir að umsókn fylgi ferilskrá yfir menntun og fyrri störf, staðfesting á námi og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknarinnar og sýn sinni varðandi hlutverk og starfsemi skólans. Sótt er um í gegnum vefsíðu Landbúnaðarháskóla Íslands www.lbhi.is/storf
Umsóknarfrestur er til og með 14. janúar 2020.
UM SKÓLANN
Landgræðsluskólinn hefur gengið undir nafninu Landgræðsluskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Frá upphafi árs 2020 starfar skólinn undir hatti UNESCO sem hluti af Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu, sem einnig er nefnd GRÓ. Landgræðsluskólinn er hýstur hjá Landbúnaðarháskóla Íslands og starfar í nánu samstarfi við Landgræðsluna. Markmið skólans er að þjálfa sérfræðinga sem starfa á stofnunum á sviði landgræðslu og sjálfbærrar landnýtingar í samstarfslöndum skólans í Afríku og Mið-Asíu. Skólinn er hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands og er kostaður af opinberum fjármunum utanríkisráðuneytisins til þróunarsamvinnu. Stærsta verkefni skólans ár hvert er 6 mánaða þjálfun á Íslandi fyrir starfandi fagfólk í samstarfslöndunum þar sem mikil áhersla er lögð á hagnýtingu þekkingar.
HELSTU VERKEFNI
- Stjórnun, stefnumótun og rekstur
- Samstarf við samstarfsaðila, innanlands og utan.
- Ábyrgð á vali nemenda frá þróunarlöndum til að taka þátt í árlegri 6-mánaða þjálfun eða MS/PhD námi hér á landi og efla samstarf við viðeigandi samstarfsaðila í samstarfslöndum skólans í Afríku og Mið-Asíu.
- Ábyrgð á gæðum og skipulagningu náms.
- Vinna með systurstofnunum á Íslandi (Sjávarútvegsskólanum, Jarðhitaskólanum og Jafnréttisskólanum) og Þekkingarmiðstöð þróunarlanda, sem er sameiginlegur tengiliður skólanna á Íslandi við UNESCO og utanríkisráðuneytið
HÆFNISKRÖFUR
- Doktors- eða meistaragráða á fagsviðum sem tengjast landgræðslu og sjálfbærri landnýtingu.
- Stjórnunarreynsla
- Reynsla af rannsóknum, kennslu eða leiðbeiningarstörfum nemenda á háskólastigi.
- Gott vald á rituðu og töluðu máli, bæði ensku og íslensku.
- Reynsla af störfum á alþjóðavettvangi svo sem þróunarsamvinnu æskileg.
- Mjög góðir samskiptahæfileikar og hæfni til að vinna með fólki frá mismunandi menningarheimum.
- Frumkvæði og drifkraftur.
FREKARI UPPLÝSINGAR
Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Landgræðsluskólans,
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands,
Árni Bragason, Landgræðslustjóri,
Nánar um starfið og Landgræðsluskólann má finna á vef Landbúnaðarháskólans www.lbhi.is og vef Landgræðsluskólans www.unulrt.is
Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 14.1.2020
Nánari upplýsingar veita
Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Landgræðsluskólans -
Ragnheiður I Þórarinsdóttir, rektor LbhÍ -
Árni Bragason, Landgræðslustjóri,