Fæðuöryggi til framtíðar - Málþing um fæðuöryggi á Íslandi

Fæðuöryggi til framtíðar - Málþing um fæðuöryggi á Íslandi

Landbúnaðarháskóli Íslands og Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands bjóða til spennandi málþings um fæðuöryggi á Íslandi.

Fjallað verður um stöðu fæðuöryggis hér á landi og hvaða áskoranir og tækifæri blasa við í ljósi:

  • Innlendrar framleiðslugetu og neyðarbirgða 
  • Áreiðanleika aðfangakeðja og virðiskeðja 
  • Áhættusviðsmynda í ljósi þróunar á alþjóðasviðinu Leiða til að styrkja fæðuöryggi til framtíðar 

Með erindi verða sérfræðingar í fremstu röð:

  1. Dr. Torfi Jóhannesson frá Nordic Insight 
  2. Dr. Jóhannes Sveinbjörnsson frá LBHÍ 
  3. Dr. Ólafur Ögmundarson frá HÍ 

Fundarstjóri: Helgi Eyleifur Þorvaldsson, LBHÍ

Í framhaldi af erindum verður pallborðsumræða. Að því loknu verður boðið upp á léttar veitingar. Hér má finna viðburðinn á Facebook: https://fb.me/e/8v53zXR0Z.

Komdu og taktu þátt í mikilvægu samtali um framtíð fæðuöryggis á Íslandi! Skráning & frekari upplýsingar: https://forms.office.com/e/90AqaK3pmP

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image