Skrifað var undir endurnýjaðan samning í hesthúsinu að Mið-Fossum. Ármann Fr. Ármannsson og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir. Mynd LbhÍ

Endurnýjun samnings um Mið-Fossa

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur frá árinu 2006 hefur leigt reiðhöll og tengda aðstöðu að Mið-Fossum sem er í eigu Ingimundar hf. sem fjölskylda Ármanns Ármannssonar heitins á. Mið-Fossar eru í fimm mínútna akstursfjarlægð frá Hvanneyri og þar er úrvals aðstaða til kennslu og annarrar starfsemi skólans á sviði reiðmennsku og umhirðu hrossa. Aðstaðan á Mið-Fossum hentar Landbúnaðarháskólanum einstaklega vel og staðsetningin er ákjósanleg. Umgjörðin er góð og býður upp á einstaka möguleika til útrásar og tekjuöflunar á þessu sviði meðal annars í tengslum við mikinn áhuga á íslenska hestinum erlendis. 

Í dag var leigusamningur endurnýjaður og samhliða vinna aðilar sameiginlega að leiðum til þess að skólinn geti eignast Mið-Fossa til framtíðar. Kaup á Mið-Fossum eru skynsamleg bæði út frá nýtingar- og fjárhagssjónarmiðum. Með aðstöðunni þar verður til grundvöllur fyrir samþættri landbúnaðarmiðstöð sem eflir starfsemi skólans auk þess sem miklir möguleikar skapast til samnýtingar sem bæði eflir starfsemi skólans og skapar aukna möguleika til tekjusköpunar. Hér er bæði horft til útrásar með námskeið sem skapar skólanum sterkan sess og aukinn sýnileika og bættrar nýtingar á húsnæði skólans að Hvanneyri, bæði skólahúsnæðis og gistirýmis.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image