Endurmenntun: Undirbúningur lands til skógræktar

Laugardaginn 9. mars kl. 10 mun Endurmenntun LBHÍ bjóða upp á námskeið þar sem fjallað um mismunandi landgerðir og helstu eiginleika þeirra, svo sem  frjósemi, rakastig, tegundaval og  hvaða jarðvinnsluaðferðir sem henta í mismunandi landgerðir. Námskeiðið er haldið hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri í Borgarfirði og kennari á námskeiðinu er Valdimar Reynisson skógfræðingur.

Valdimar mun fræða þátttakendur um undirbúning lands til skógræktar með tilliti til ólíkra aðstæðna og hvaða möguleikar eru til staðar, hver er tilgangurinn, mögulegur ávinningur og kostir og gallar. Farið verður yfir mismunandi þætti í undirbúningi lands til skógræktar, s.s. uppgræðslu, hvenær þarf að græða upp, mismunandi uppgræðslu aðferðir og áburðargjöf.  Jarðvinnsla og mismunandi jarðvinnsluaðferðir eru kynntar, farið ítarlega í hverja aðferð fyrir sig þar sem kostir og gallar eru metnir. Einnig er fjallað um slóðagerð, hvað þarf að hafa í huga við lagningu slóða og mismunandi aðferðir kynntar.

Í lok námskeiðsins er farið í vettvangsferð á jörð í nágrenninu þar sem hægt er að skoða að minnsta kosti tvær tegundir jarðvinnslu. 

Valdimar er með langa reynslu í skógrækt, hann lauk námi frá Garðyrkjuskóla ríkisins árið 1990 af námsbrautinni Skógur og umhverfi, BS gráðu í skógfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands 2007 og meistaraprófi í skógarstjórnun (forest management) frá SLU í Svíþjóð 2011. Hann hefur starfað við allt sem við kemur skógrækt, sem vélamaður, skógarhöggsmaður, verkstjóri, skógarvörður, verktaki og skógræktarráðgjafi.

Skráning og nánari upplýsingar á vef Endurmenntunar LBHÍ.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image