Trédrumbar tilbúnir til vinnslu.

Trédrumbar tilbúnir til vinnslu.

Endurmenntun - eldiviður úr eigin garði

Viltu höggva eigin við í eldinn? Í samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur býður Endurmenntun LbhÍ upp á nýtt námskeið um eldivið.

Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um fellingu og sögun á minni trjám, hvernig best er að kljúfa viðinn og þurrka. Farið verður yfir eiginleika tegunda og hvaða viður hentar í mismunandi eldstæði. Þá verður fjallað sérstaklega um brunavarnir, mismunandi eldstæði, hvernig megi lágmarka eldhættu og margt, margt fleira.


FJALLAÐ ER MEÐAL ANNARS UM

  • Fellingu og sögun á minni trjám.
  • Trjátegundir og mismunandi eiginleika þeirra.
  • Þurrkun, loftun og raka eldiviðar.
  • Eldstæði, umgengni og umhirða þeirra.
  • Uppkveikiefni og uppkveikju elds í öruggu umhverfi.
  • Eldhættu í görðum og á sumarhúsalóðum.

FYRIR HVERJA
Námskeiðið er hugsað fyrir fólk sem vill geta nýtt greinar og trjástofna sem falla til við umhirðu og grisjun í görðum eða sumarbústaðalóðum. Nú er að hefjast sá árstími sem hentar best til að grisja í görðum.

KENNARAR
Sævar Hreiðarsson, skógfræðingur og skógarvörður í Heiðmörk og Teitur Björgvinsson, umsjónarmaður viðarvinnslu og viðarverslunar hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur.

NÁMSKEIÐ Í BOÐI
Fimmtudagur 13. febrúar kl. 16-19.

KENNSLUFYRIRKOMULAG
Námskeiðið er að hluta bóklegt en að mestu leyti verklegt. Nemendur fá meðal annars að prófa sig áfram í verklagi við að ná í eldivið úr eigin garði. Námskeiðið fer fram í Heiðmörk hjá Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Kennt er í viðarvinnslu félagsins, Þingnesvegi 5, 161 Reykjavík (Smiðjan), og næsta nágrenni sem er kjörið til verklegrar þjálfunar.

Nánari upplýsingar og skráningar má finna á vef Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image