Byggðaráð Borgarfjarðar vill stofna vinnuhóp um framtíð háskólanna í Borgarbyggð

Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 2. janúar  að setja á stofn vinnuhóp um framtíð háskólanna í Borgarbyggð. 

Í tilkynningu frá Borgarbyggð segir að óskað verði eftir aðild fulltrúa frá Háskólanum á BifröstLandbúnaðarháskóla ÍslandsBændasamtökum Íslands og atvinnulífinu, auk þess sem fulltrúar frá sveitarfélaginu verða í hópnum.

Verkefni hópsins er að leita allra leiða til að styrkja starfsemi Háskólans á Bifröst og Landbúnaðarháskóla Íslands með það að markmiði að þeir verði áfram sjálfstæðar og öflugar stofnanir sem hér eftir sem hingað til bjóði nemendum sínum upp á góða menntun sem er undirstaða framfara í þjóðfélaginu. Auk þess verði skoðað sérstaklega hvort skólarnir geti styrkt stöðu sína með auknu samstarfi og fetaðar nýjar brautir í rekstri og skipulagi.

Þá segir að skólarnir hafi verið helsti vaxtarbroddurinn í Borgarbyggð undanfarin ár og starfsemi þeirra er gríðarlega mikilvæg fyrir nærumhverfi sitt. "Sterk tenging þeirra við atvinnulífið kemur fram í samsetningu vinnuhópsins," segir í tilkynningunni.

3.1.2014

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image