Útskriftaremar garðyrkjubrauta að lokinni athöfn

Brautskráning nemenda af garðykjubrautum

Guðríður Helgadóttir starfsmenntanámsstjóri ásamt Elinborgu Erlu Ásgeirsdóttur dúx skólans en hún útskrifaðist af braut lífrænnar ræktunnar matjurta
Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor flytur ávarp

Brautskráning nemenda af garðyrkjubrautum fór fram í Hveragerðiskirkju laugardaginn 30. júní 2020. Stór hópur fagnaði tímamótunum þótt hafa þurfti takmörk á fjölda gesta og hugað var að sóttvörnum. Björgvin Örn Eggertsson brautarstjóri stýrði athöfninni og flutti Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor og Guðríður Helgadóttir starfsmenntanámsstjóri ávörp. Nemendum var óskað góðs gengis og velfarnaðar og einkar ánægjulegt að kveðja flottan hóp sem á framtíðina fyrir sér í garðyrkju á Íslandi, þar sem tækifærin eru mikil í dag.

Við athöfnina söng Einar Clausen nokkur vel valin lög við undirleik Jóns Kristófers Arnarsonar, kennara, á gítar og Ingólfs Guðnasonar, brautarstjóra, á bassa. Nemendur útskrifuðust af 6 brautum og voru veitt verðlaun fyrir bestan árangur á hverri braut fyrir sig. Af blómaskreytingabraut hlaut Íris Hildur Eiríksdóttir verðlaun fyrir bestan árangur. Steinunn Gunnlaugsdóttir af garð- og skógarplöntubraut. Elínborg Erla Ásgeirsdóttir af braut lífrænnar ræktunnar matjurta. Linda María Traustadóttir af ylræktarbraut. Níels Magnús Magnússon af skóg- og náttúrubraut og Benedikt Örvar Smárason af skrúðgarðyrkjubraut.

Dúx garðyrkjuskólans að þessu sinni var Elínborg Erla Ásgeirsdóttir með einkuninna 9,64 og hlaut hún bókagjöf frá skólanum.

Að lokinni hátíðlegri athöfn var boðið uppá kaffiveitingar. Við óskum öllum innilega til hamingju með daginn og áfangann.

Fleiri myndir frá athöfninni er að finna á facebókarsíðu skólans hér

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image