Brautskráning Landbúnaðarháskóla Íslands 2025

Brautskráning Landbúnaðarháskóla Íslands 2025

Brautskráð var í dag við hátíðlega athöfn frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Við óskum öllum brautskráðum og aðstandendum þeirra innilega til hamingju með daginn. Athöfnin fór fram í Hjálmakletti í Borgarnesi og svo var boðið til kaffisamsætis á Hvanneyri að henni lokinni.

Að þessu sinni stóð Salka Einarsdóttir efst á B.S. prófi heilt yfir með einkunina 9,02 en hún var að brautskrást úr skógfræði.

Efst fyrir B.S. lokaverkefni stóð Maríanna Ósk Mikaelsdóttir sem brautskráðist úr landslagsarkitektúr en verkefni hennar fjallaði um Náttúruperluna Kjarnaskóg, greining á þáttum sem stuðla að vinsældum útivistarsvæða.

Fyrir frábæran árangur á búfræðiprófi stóð efst Kristín Ólafsdóttir.

Athöfninni stýrði Guðmunda Smáradóttir og futti Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor ræðu fyrir brautskráða og afhenti skírteini. Ásta Marý Stefánsdóttir flutti nokkur lög í athöfninni við undirleik Viðars Guðmundssonar. 

Brautskráning úr starfsmenntanámi

Alls voru 34 nýjir búfræðinga sem settu upp húfur í dag. Helgi Eyleifur Þorvaldsson námsbrautarstjóri brautskráði sína nemendur og veitti verðlaun fyrir góðan árangur.

Fyrir frábæran árangur á búfræðiprófi hlaut Kristín Ólafsdóttir verðlaun gefin af Bændasamtökum Íslands. Fyrir góðan árangur í hagfræðigreinum fengu Jón Hjálmar Ingimarsson og Kristín Ólafsdóttir verðlaun gefin af Búnaðarsamtökum Vesturlands. Ólafur Auðunn Sigvaldason hlaut verðlaun fyrir góðan árangur í bútæknigreinum gefin af Líflandi. Kristín Ólafsdóttir hlaut einnig verðlaun fyrir góðan árangur í bújárræktargreinum gefin af RML. EInnig hlaut Kristín verðlaun fyrir góðan árangur í námsdvöl gefin af Minningarsjóði Hjartar Snorrasonar og Ragnheiðar Torfadóttur.

Búfræðingar 2025

 

Brautskráning af háskólabrautum 

Landbúnaðarháskólinn brautskráði nemendur af fimm brautum til BS náms og eru það búvísindi, hestafræði, landslagsarkitektúr, náttúru- og umhverfisfræði og skógfræði auk nemenda úr meistaranámi í skipulagsfræði, einstaklingsmiðuðu rannsóknarnámi og umhverfisbreytingum á norðurslóðum sem og doktorsnámi. Nemendur af háskólabrautum hlutu einnig viðurkenningar fyrir góðan námsárangur.

Brautskráðir úr búvísindum og hestafræði 2025

 

Búvísindi og hestafræði

Helgi Eyleifur Þorvaldsson námsbrautarstjóri búvísinda og hestafræða veitti Loga Sigurðsyni verðlaun fyrir góðan árangur á B.S. prófi í búvísindum gefin af Bændasamtökum Íslands. Maria Kim Desirée Edman hlaut verðlaun fyrir góðan árangur á B.S. prófi á hestafræðibraut gefin af Kaupfélagi Borgfirðinga. Tíu nemendur brautskráðust úr búvísindum og einn úr hestafræði.

Brautskráðir úr landslagsarkitektúr 2025

 

Landslagsarkitektúr

Ivan Juarez veitti Maríönnu Ósk Mikaelsdóttur verðlaun fyrir góðan árangur á B.S. prófi í landslagsarkitektúr gefin af Félagi landslagsarkitekta. Þrír nemendur brautskráðust úr landslagsarkitektúr.

Brautskráðir úr náttúru- og umhverfisfræði og skógfræði 2025

 

Náttúru- og umhverfisfræði og skógfræði

Í náttúru- og umhverfisfræði hlaut Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack verðlaun fyrir góðan árangur á B.S. prófi en tveir nemendur brautskráðust.

Í skógfræði hlaut Salka Einarsdóttir verðlaun fyrir góðan árangur á B.S. prófi gefin af Skógræktarfélagi Reykjavíkur. Sex nemendur brautskráðust úr skógfræði í dag.

Jóhanna Bergrúnar Ólafsdóttir brautskráði nemendur af báðum brautum.

Brautskráning úr framhaldsnámi

Úr meistaranámi brautskráðust níu nemendur úr skipulagsfræði, rannsóknamiðuðu meiðstaranámi og Umhverfisbreytingum á norðurslóðum. Fyrir góðan árangur á M.S. prófi í skipulagsfræðum hlaut Margrét Þóra Sæmundsdóttir verðlaun gefin af Skipulagsfræðingafélagi Íslands.

Þá luku tveir nemendur PhD námi, Heiðrún Sigurðardóttir úr búvísindum og Mathilde F. Marie Defourneaux úr náttúru- og umhverfisfræði.

Brautskráðir úr meistaranámi í skipulagsfræði 2025

 

Brautskráð úr meistaranámi í endurheimt vistkerfa 2025

 

Stykveitingar og viðurkenning

Ragnheiður I. Þórarinsdóttir veitti síðan Ingiberg Daða Kjartanssyni viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu félags-, kynningar- og framfaramála skólaárið 2024-2025.

Geirlaug Þorvaldsdóttir veitti að lokum styrki úr úr Framfarasjóði Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar í Síld og fisk og hlutu Anna Guðrún Þórðardóttir og Gunnhildur Gísladóttir styrki. Anna Guðrún er í doktorsnámi við LbhÍ og Gunnhildur í meistaranámi og báðar í búvísindum.

Ljósmyndir Steinunn Þorvaldsdóttir.

Við óskum öllum innilega til hamingju með daginn!

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image