Árlegt sex mánaða námskeið Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna er hafið

Árlegt hálfs árs námskeið Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna hófst 11. mars og eru þátttakendur 12 að þessu sinni, sjö karlar og fimm konur. Nemarnir koma frá Eþíópíu (2 nemar), Gana (3), Mongólíu (2), Níger (2), Úganda (2) og Úsbekistan (1).

Námið er nú komið  á fullt skrið en markmiðið er að byggja upp færni sérfræðinga frá þróunarlöndum í landgræðslu, umhverfisstjórnun og sjálfbærri landnýtingu.  Margir nemanna koma úr háskóla- eða rannsóknarumhverfi en aðrir starfa í ráðuneytum eða sem umhverfisfulltrúar við náttúru- og landvernd.

Að vanda munu nemar Landgræðsluskóla HSþ hafa námsaðstöðu sína við Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti í Reykjavík en einnig munu þau dvelja í um tvo mánuði yfir sumartímann í höfuðstöðvum Landgræðslu ríkisins í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Þessar tvær stofnanir, þ.e. Landbúnaðarháskóli Íslands og Landgræðslan koma að rekstri Landgræðsluskólans, ásamt utanríkisráðuneytinu sem leggur skólanum til fjármagn.

Landgræðsluskólinn var stofnaður 2007 og síðan þá  hafa 51 nemi útskrifast  frá skólanum frá 10 löndum í Afríku og Mið-Asíu.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image