Áhugaverð ráðstefna á döfinni

Að sækja vatnið yfir lækinn

Umhverfisskipulagsbraut LbhÍ stendur að áhugaverðri ráðstefnu á Akranesi.

Helena Guttormsdóttir lektor segir Vesturland standa á tímamótum. Nálægð við höfuðborgarsvæðið og iðnaðarsvæði á Grundartanga, skapar atvinnutækifæri en líka mikinn akstur og fjarveru frá heimabyggð. Hvernig má auka fjölbreytileika og gera svæðið sjálfbærara um eigin hag. Er nóg að skapa ný atvinnutækifæri? Eða þurfa samfélagslegir innviðir, nýsköpun og atvinna að vinna saman til að auka sameiginleg lífsgæði. Býður Vesturland e.t.v. upp á gæði sem munu þykja afar eftirsóknarverð á komandi árum? 

Á málþinginu „Að sækja vatnið yfir lækinn“ sem haldið verður í Tónbergi Akranesi laugardaginn 23.mars koma saman aðilðar af ólíkum sviðum samfélagsins til að miðla af þekkingu sinni og skapa umræður um atvinnutækifæri, lífsgæði og nýsköpun. Málþingið er samstarfsverkefni Akraneskaupstaðar, SSV, Landbúnaðarháskóla Íslands og Uppbyggingarsjóðs Vesturlands.

Getur Vesturland skapað fleiri og fjölbreyttari atvinnutækifæri með heildrænni nálgun?

Þórdís Kolbrún ráðherra setur ráðstefnuna undir yfirskriftinni „Nýsköpun er nauðsyn“. Þá hefst fjöldi áhugaveðra örerinda sem vonandi virka sem vítamínsprauta á málþingsgesti. Heiðar Mar Björnsson kvikmyndagerðarmaður veltir fyrir sér umhverfi frumkvöðla á Akranesi, Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar og fyrrverandi forstjóri Marels fjallar um doktorsnám sem drifkraft í nýsköpun. Karen Jónsdóttir segir frá sínu lífræna nýsköpunarfyrirtæki og Ólöf Helga Jónsdóttir frá Skaganum 3x s fjallar um hag stórfyrirtækja af þáttöku í erlendum rannsóknarsjóðum. Skoðaðir verða möguleikar Akraness sem göngu - og hjólabæjar og reynsla Siglfirðinga af innviðauppbyggingu kynnt, svo eitthvað sé nefnt.

Í lokin verða pallborðsumræður með þátttöku Sævars Þráinssonar bæjarstjóra, Ragnheiðar I Þórarinsdóttur rektors LbhÍ, Inga Rafns Sigurðssonar stofnanda Karolina Fund, Signýjar Óskarsdóttur Creatrix ráðgjöf- Karen Jónsdóttir frá Café Kaja og Gests Péturssonar forstjóra Elkem. Léttar veitingar verða í ráðstefnulok og fundarstjóri er Páll Brynjarsson frá SSV. Allir áhugasamir um nýsköpun, atvinnu og gott samfélag á Vesturlandi eiga ekki að láta sig vanta á ráðstefnuna á laugardaginn.

Okkar er ábyrgðin...

Skráning fer fram hér 
Upplýsingar um viðburðinn á facebook er hér

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image