Umhverfisráðherra skrifar undir verndaráætlun fyrir friðlandið í Andakíl

Umhverfisráðherra opnar gestastofu fyrir friðland fugla í Andakíl

Ragnhildur Helga Jónsdóttir og Brynja Davíðsdóttir handsala hér samning um vinnu við næsta áfanga gestastofunnar
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Brynja Davíðsdóttir, Ragnhildur Helga Jónsdóttir og Ragnheiður I Þórarinsdóttir við opnun fyrsta áfanga gestastofunnar
Gestastofan er staðsett í hlöðu Halldórsfjóss í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri

Síðasta vetrardag, þann 24. apríl var formleg opnun á fyrsta áfanga gestastofu fyrir friðland fugla í Andakíl. Gestastofan er staðsett í húsakynnum Landbúnaðarsafns Íslands og hefur Ragnhildur Helga Jónsdóttir safnstjóri Landbúnaðarsafns Íslands og námsbrautarstjóri við LbhÍ staðið að stofnun hennar ásamt öðrum. Umhverfisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson opnaði fyrsta hluta hennar formlega og staðfesti með undirskrift sinni verndaráætlun fyrir Ramsarsvæðið í Andakíl.

Í þessum fyrsta áfanga eru lögð drög að fræðslusýningu um friðlandið og þýðingu þess með upplýsingaspjöldum og myndrænu efni fyrir gesti og gangandi í hlöðu Halldórsfjóss á Hvanneyri. Lögð voru drög að næsta áfanga með undirskrift ráðningar við Brynju Davíðsdóttur um ráðgjöf við næstu skref uppbyggingar gestastofunnar.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image