Alþjóðlega samstarfsverkefnið COAST Sustainable Resilient Coasts [ Ísl. Sjálfbær strandsvæði ] sem leitt er af Landbúnaðarháskólanum hefur farið vel af stað. Verkefnið hófst í mars síðastliðnum og vinnur með framtíðaráskoranir á strandsvæðum á norðurslóðum.
Drónar notaðir við skipulag og þróun strandsvæða
Verkefnið hefur nýverið gefið út skýrslu um nýtingu dróna við skipulag og þróun strandsvæða. Sjálfbær nýting náttúruauðlinda á viðkvæmum strandsvæðum er mikil áskorun og samþætt stjórnun strandsvæða leitast við að takast á við þær áskoranir og finna jafnvægi á milli þeirra mörgu og stundum misvísandi markmiða sem felast í mismunandi nýtingu.
Markmið COAST verkefnisins er að þróa aðferðir og verkfæri til að aðstoða stjórnendur sveitarfélaga og aðra hagaðila til að taka upplýstar ákvarðanir við mótun framtíðarskipulags strandsvæða. Nýting drónatækni sem hefur þróast hratt á undanförnum árum er dæmi um verkfæri sem býður upp á spennandi möguleika.
Skýrsluna í heild sinni má finna hér.
COAST verkefnið er styrkt af Norðurslóðaáætluninni og er samstarf sérfræðinga frá Íslandi, Írlandi, Norður-Írlandi og Finnlandi. Frekari upplýsingar eru á heimasíðu verkefnisins.