Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Freyja Ragnarsdóttir Pedersen
nemi í náttúru- og umhverfisfræðum


Ég valdi námið í náttúru og umhverfisfræði vegna þess að ég hef brennandi áhuga á náttúruvernd, sjálfbærri nátturunytingu og umhverfismálum.
 
Ég held að mínir uppáhalds áfangar séu jarðvegsfræðin hjá Ólafi Arnalds, vistheimt og sjálfbær landnýting með Ásu Aradóttur, Beitarvistfræði með Isabel Barrio, siðfræði náttúrunnar með Jóni Kalmanssyni og Plöntugreiningarnámskeiðið með Birni Þorsteins. Þessir kennarar eiga það öll sameiginlegt brenna fyrir sínu fagi.
 
Siðfræðin var skemmtilega öðruvísi en aðrir áfangar námsins, þar spáðum við í hvað væri siðferðislega rétt að gera við og í náttúrunni okkar og umhverfi. Við ræddum líka um loftslagskvíða, losun einstaklingsins og svona þessa hluti sem maður spáir svo mikið í og valda manni jafnvel vanlíðan. Í jarðvegsfræðin í opnaðist manni nýr heimur, hluti náttúrunnar sem ég hafði aldrei almennilega spáð í eða áttað mig á mikilvægi þess. Jarðvegurinn er undirstaða nánast alls lífs á jörðinni. Beitarvistfræðin gaf innsýn í hvað sé að gerast i vistkerfum við beit líkt og er hér á Íslandi, m.a. vegna sauðfé og hvað sé hægt að gera til að hafa sjálfbæra nýtingu á afréttum landsins.
 
Í plöntugreiningarnámskeiðinu, sem er sumarnámskeið, eyddum við heilli viku í að safna og greina 37 einkímblöðunga og 37 tvíkímblöðunga. Við hittumst öll á Hvanneyri eina viku í júní, gengum um með kennurum í hinum ýmsu vistgerðum og söfnuðum plöntusýnum sem við síðan þurrkuðum og settum í möppu.
 
Ég vil bæta við að námið er enn í mikilli þróun og maður finnur fyrir því sem nemandi.
Image
Evlalía Kolbrún Ágústsdóttir
nemi í náttúru- og umhverfisfræðum


Ég fór í náttúru- og umhverfisfræði vegna þess að námið er fjölbreytt og þverfaglegt. Mín helstu áhugamál tengjast útivist og heillaði námið mig þar sem það spannar allt milli himins og jarðar (bókstaflega) og opnar einnig fyrir marga möguleika. Ég hugsa að gráðan sé mjög mikilvæg þegar horft er til framtíðar enda þurfa allir að taka sér tak hvað varðar náttúru og umhverfi þar sem án náttúru erum við ekkert. Þriðja og seinasta árið mitt í LBHÍ sat ég í Grunnnámsnefnd sem fulltrúi nemenda þar sem mitt helsta hlutverk var að miðla ábendingum og hrósum milli nemenda og stjórnenda. Vel var tekið í ábendingar og margt bætt þó enn megi bæta margt líkt og í öðru námi, jákvætt þótti mér þó að hlustað var á ábendingar nemenda.

Ég stefni á mastersnám í sjálfbærri þróun, stjórnun og stefnumótun við Modulháskóla í Vínarborg næstkomandi haust.

logo

Knowledge in the field of sustainable use of resources, environment, planning and food production.

Image
Image
Image