- Forsíða
- Nám
Búvísindi BS
- Grunnnám
- BS
- 180
Í búvísindum lærir þú hagnýta líffræði og landbúnaðarfræði sem veitir undirbúning fyrir margvísleg störf tengd landbúnaði eða námi í dýralækningum. Nemendur sem klára námið starfa til dæmis við búrekstur, þjónustu- og leiðbeiningarstörf eða við kennslu og rannsóknir. Búvísindanám er góð undirstaða fyrir framhaldsnám og vísindastörf á sviði landbúnaðarfræða og er vöntun í heiminum á fólki með þessa menntun.
Skógfræði BS
- Grunnnám
- BS
- 180
Hér er um að ræða nám með áherslu á sjálfbæra skógrækt, skógarnýtingu og á vistheimt á illa förnu landi. Ekki er boðið upp á hliðstæða samsetningu náms við aðra íslenska háskóla.
Náttúru- og umhverfisfræði BS
- Grunnnám
- BS
- 180
Í náttúru- og umhverfisfræði er lögð áhersla á íslenskra náttúru. Þverfaglegri nálgun er beitt við alla umfjöllun og fjallað er um hvernig lífverur hafa áhrif á umhverfið og hvernig umhverfið hefur áhrif á þær.
Hestafræði BS
- Grunnnám
- BS
- 180
Hestafræði er innihaldsríkt, alhliða nám þar sem bóklegt nám og verklegir áfangar blandast. Þú öðlast traustan þekkingargrunn á breiðu sviði hestafræða með sérstaka áherslu á íslenska hestinn. Í náminu færðu traustan grunn í raunvísindum sem byggt er ofan á með sérgreinum landbúnaðarfræða og sérhæfðum námsgreinum um hesta.
Landslagsarkitektúr BS
- Grunnnám
- BS
- 180
Landslagsarkitektúr er fjölbreytt og víðfeðmt nám sem sameinar hönnun og þekkingu á náttúru- og umhverfisfræðum við félagslega þætti. Í náminu er lögð áhersla á vistvæna nálgun og sjálfbærni, með tilliti til sérstöðu Íslands. Landslagsarkitekt vinnur að því að bæta lýðheilsu og heilbrigði umhverfisins í samfélagi okkar.
Diplóma í tamningum
- Grunnnám
- Diplóma
- 60
Diplóma eða örnám í tamningafræði veitir heildstæða og hagnýta innsýn í fortamningar, frumtamningar og þjálfun unghrossa.
Diplóma í búvísindum með áherslu á dýraheilbrigði
- Grunnnám
- Diplóma
- 131
Um er að ræða tveggja ára diplómanám sem hefur það meginmarkmið að undirbúa nemendur til starfa og áframhaldandi náms á sviði búvísinda og dýraheilbrigðisvísinda.