- Forsíða
- Nám
- Grunnnám
- Hestafræði BS

BS gráða 180 ECTS
Hestafræði
Hestafræði er innihaldsríkt, alhliða nám þar sem bóklegt nám og verklegir áfangar blandast. Þú öðlast traustan þekkingargrunn á breiðu sviði hestafræða með sérstaka áherslu á íslenska hestinn. Í náminu færðu traustan grunn í raunvísindum sem byggt er ofan á með sérgreinum landbúnaðarfræða og sérhæfðum námsgreinum um hesta.
Traustur þekkingargrunnur með blöndu af verklegum og bóklegum fögum
Nám við Hestafræðibraut er 3ja ára BS nám sem hefur það meginmarkmið að veita þér breiða grunnmenntun í hagnýtri líffræði ásamt sérþekkingu í grunngreinum búvísinda og í líffræði hesta, meðferð þeirra og þjálfun. Nemendur fá grunn í raunvísindum sem byggt er ofan á með sérgreinum landbúnaðarfræða og sérhæfðum námsgreinum um hesta.
Brautarstjóri er Helgi Eyleifur Þorvaldsson

BS gráða- 180 ECTS einingar
Sækja um
Skipulag náms í hestafræði 2025-2026
Námsskrá
Aðstaðan
Hestamiðstöð skólans er staðsett á Mið-Fossum og er þar pláss fyrir um 70 hross í einstaklingsstíum. Innangengt er í góða reiðhöll með öllum búnaði til kennslu, sýninga og móta. Innifalið í leigu eru gjafir og spænir með aðgengi að allri aðstöðu

Framhaldsnám í hestafræði
Námið hentar einnig mjög vel sem undirbúningur fyrir framhaldsnám til meistaragráðu á sviði hestafræða sem stunda má við LbhÍ. Þá er einnig möguleiki á frekara rannsóknanámi á þessu sviði til doktorsgráðu.