- Forsíða
- Nám
- Grunnnám
- Skógfræði BS

BS gráða 180 ECTS
Skógfræði
Hér er um að ræða nám með áherslu á sjálfbæra skógrækt, skógarnýtingu og á vistheimt á illa förnu landi. Ekki er boðið upp á hliðstæða samsetningu náms við aðra íslenska háskóla.
Viltu læra allt um sjálfbærs skógrækt, skógarnýtingu og vistheimt á illa förnu landi?
Nemendur sem ljúka BS í skógfræði fá starfsheitið skógfræðingur og geta sótt um aðild að fagfélaginu Skógfræðingafélag Íslands.
Umsvif skógræktar og landgræðslu eru að aukast og hefur þörf fyrir fólk með trausta fagþekkingu á þessu sviði stóraukist. Einnig eru að verða til lítil verktakafyrirtæki víða um land sem sérhæfa sig á þessu sviði og selja þjónustu sína til bænda, sveitarfélaga og annarra landeigenda.
Námið er þverfaglegt og nýtist einkar vel til starfa hjá hinu opinbera eða til sjálfstæðrar atvinnustarfsemi innan græna geirans. Ennfremur opnast margvísleg önnur atvinnutækifæri, t.d. í kennslu, landbúnaði, blaðamennsku og stjórnsýslu.
Einnig opnast möguleikar á störfum erlendis sem varða skógfræði og landgræðslu, t.d. í sambandi við þróunarverkefni í þriðja heiminum, þar sem skógar- og jarðvegseyðing er oftar en ekki undirrót vandamála sem leysa þarf þar.
Brautarstjóri er Jóhanna Bergrúnar Ólafsdóttir.

BS gráða – 180 ECTS einingar
Sækja um
Námskrá 2025-2026
Námsskrá
Framhaldsnám í skógfræði
Tækifæri er á áframhaldandi námi til meistaragráðu í skógfræði eða landgræðslu við LBHÍ eða aðra háskóla.
