- Forsíða
- Nám
- Grunnnám
- Búvísindi BS

BS gráða 180 ECTS
Búvísindi
Í búvísindum lærir þú hagnýta líffræði og landbúnaðarfræði sem veitir undirbúning fyrir margvísleg störf tengd landbúnaði eða námi í dýralækningum. Nemendur sem klára námið starfa til dæmis við búrekstur, þjónustu- og leiðbeiningarstörf eða við kennslu og rannsóknir. Búvísindanám er góð undirstaða fyrir framhaldsnám og vísindastörf á sviði landbúnaðarfræða og er vöntun í heiminum á fólki með þessa menntun.
Vilt þú starfa við matvælaframleiðslu og ræktun lands?
Nám í búvísindum er 3 ára BS-nám sem veitir nemendum breiðan grunn í hagnýtri líffræði og landbúnaðarfræðum. Námið sameinar raunvísindi, jarðrækt, búfjárfræði með rekstrar- og tæknigreinum með áherslu á íslenskan landbúnað með sjálfbæra nýtingu auðlinda að leiðarljósi. Markmiðið er að undirbúa nemendur fyrir störf og verkefni tengd landbúnaði og landnýtingu, auk þess að leggja grunn að framhaldsnámi og fræðistörfum á sviði búvísinda. Námið fjallar meðal annars um jarðrækt, fóður og fóðrun, kynbætur, líffræði og velferð dýra auk grunngreina náttúruvísinda, s.s. efnafræði og líffræði.
Brautarstjóri er Helgi Eyleifur Þorvaldsson

BS gráða - 180 ECTS einingar
Sækja um
Skipulag náms í búvísindum 2025-2026
Námsskrá
Framhaldsnám í búvísindum
Meistaranám (MS) í búvísindum eykur hæfni fólks til að starfa í leiðbeiningaþjónustu í hvers konar búrekstrartengdum störfum. Einnig er mögulegt að stunda rannsóknanám til doktorsgráðu á sumum sviðum búvísinda.
