- Forsíða
- Nám
- Grunnnám
- Landslagsarkitektúr BS

BS gráða 180 ECTS
Landslagsarkitektúr
Landslagsarkitektúr er fjölbreytt og víðfeðmt nám sem sameinar hönnun og þekkingu á náttúru- og umhverfisfræðum við félagslega þætti. Í náminu er lögð áhersla á vistvæna nálgun og sjálfbærni, með tilliti til sérstöðu Íslands. Landslagsarkitekt vinnur að því að bæta lýðheilsu og heilbrigði umhverfisins í samfélagi okkar.
Vilt þú hanna umhverfi fólks?
Umhverfi okkar þarf að vera þannig að fólki líði þar vel við leik og störf. Góð íbúðasvæði með samspili bygginga og opinna svæða auka á vellíðan og heilbrigði fólks. Gott skipulag landnotkunar í þéttbýli og dreifbýli er mikilvægt fyrir þá sem þar búa, enda hafa hönnuðir samspil náttúru, íbúa og hönnunar að leiðarljósi því er mikilvægt að mennta fólk á þessu sviði.
Brautarstjóri: Helena Guttormsdóttir

BS nám - 180 ECTS einingar
Sækja um
Af hverju landslagsarkitektúr?
Umhverfið mótar manninn. Áhrif hans á það sem honum er næst geta verið umtalsverð. Þar má ekki kasta til höndum.
Umhverfi þarf að vera þannig að fólki líði vel við leik og störf. Góð íbúðasvæði með samspili bygginga og opinna svæða auka á vellíðan og heilbrigði fólksins. Gott skipulag landnotkunar í þéttbýli og dreifbýli er mikilvægt fyrir þá sem búa á viðkomandi stað, enda hafi hönnuðir haft samspil náttúru, íbúa og hönnunar að leiðarljósi. Um leið þurfa þeir að leggja áherslu á sjálfbærni,vistvæna nálgun auk sérstöðu náttúru og samfélags.
Skipulag náms í landslagsarkitektúr 2025-2026
Námsskrá
Nánar um lífið sem nemandi í landslagsarkitektúr

Að loknu námi í landslagsarkitektúr
Störf að loknu BS- námi geta verið margvísleg, t.d. hjá opinberum aðilum, sveitarfélögum og ráðgjafafyrirtækjum, á teiknistofum landslagsarkitekta, skipulagsfræðinga, verkfræðinga og arkitekta, auk umsjónar með náttúruverndar- og útivistarsvæðum.
Með því að halda áfram í námi til meistaragráðu geta nemendur öðlast starfsréttindi sem landslagsarkitektar eða skipulagsfræðingar. Fólk sem hlotið hefur þessa gráðu vinnur að mótun umhverfis í þéttbýli og dreifbýli. Það gegnir mikilvægu hlutverki við að skipuleggja umhverfi okkar daglega lífs og þarf stöðugt að vera vakandi fyrir vistvænum og sjálfbærum lausnum í þéttbýli sem dreifbýli.
Landslagsarkitektar og skipulagsfræðingar vinna meðal annars við skipulagningu á þróun byggðar og landnýtingar. Þeir hanna opin svæði, garða og torg, skólalóðir, útvistar og ferðamannasvæði, kirkjugarða og vegastæði svo eitthvað sé nefnt. Þá má nefna að leitað er til landslagsarkitekta og skipulagsfræðinga þegar unnið að mati á umhverfisáætlunum og fleiri verkefnum sem tengjast skipulagsmálum og náttúrufræði.
Atvinnumöguleikar
Nemendur sem ljúka BS-námi eiga möguleika á störfum hjá teiknistofum landslagsarkitekta og öðrum fyrirtækjum sem starfa á svið hönnunar og skipulagsáætlana. Einnig ráða opinberar stofnanir og sveitarfélög til sín nemendur sem ljúka grunnnáminu frá Landbúnaðarháskólanum.
Landslagsarkitektar framtíðarinnar mun koma að hönnun og áætlanagerð sem snertir á fagurfræði, náttúrulegum lausnum og verkefnum sem tengjast umhverfi mannsins og nýjum áskorunum tengdum loftslagsmálum og sjálfbærni. Atvinnuhorfur í framtíðinni eru mjög góðar og það er eftirspurn eftir sérþekkingu landslagsarkitekta.
