Nýtt rit LbhÍ: Upphitun íþróttavalla

Nýlega kom út LbhÍ rit um niðurstöður tilraunar um upphitun íþróttavalla eftir Guðna Þorvaldsson og Svavars T. Óskarsson. Markmið rannsóknarinnar var að komast að því hvort lengja mætti notkunartíma íþróttavalla með því að hita jarðveginn með hitaveituvatni síðla vetrar og fram á vor. Könnuð voru áhrif 4 mismunandi hitunarmeðferða, í samanburði við óupphitað, á 6 grastegundir.

Upphitunin flýtti því öll árin að reitirnir grænkuðu. Reitur sem byrjað var að hita í 10°C 1. mars grænkaði alltaf fyrst. Að meðaltali var hann orðinn hálfgrænn 15 dögum (5-20 dögum) á undan óupphitaða reitnum og um það bil algrænn 10 dögum fyrr (2-16 dögum). Upphitun í 5°C frá 1. mars skilaði sama árangri að meðaltali og upphitun í 10°C frá 1. apríl. Lakastur árangur af upphituninni var þegar einungis var hitað í 5°C frá 1. apríl. Það virðist því of lítið að hita einungis í 5°C í apríl en það gæti, sum árin a.m.k., verið nóg að hita í 5°C í mars og hækka svo í 10°C í apríl.

Grösin virtust ekki bera skaða af upphituninni og vallarrýgresi lifði betur í upphituðum reitum en óupphitaða reitnum.  Vallarrýgresi byrjaði jafnan fyrst að grænka og Baroyal rauðvingull kom næstur. Ekki var verulegur munur á hinum yrkjunum.

Mikilvægt reyndist að bera vel á reitina og vökva eftir þörfum þannig að þessir vaxtarþættir væru ekki takmarkandi fyrir gróðurinn.

Orkan í heita vatninu nýttist vel og þurfti að meðaltali 15,4 kWh/m2 (11,6-22,8) til að halda hitanum í 10 cm dýpt í 5°C í marsmánuði og 27,2 kWh/m2 (22,1-33,7) til að halda honum í 10°C. Fyrir þessa sömu reiti þurfti 2,6 kWh/m2 (0,2-5,1) til að halda hitanum í apríl í 5°C og 12,9 kWh/m2 (7,9-22,0) til að halda honum í 10°C.

Það þurfti 3,8 kWh/m2 (0,9-7,9) til að halda reit sem byrjað var að hita 1. apríl í 5°C allan aprílmánuð og 18,2 kWh/m2 (14,8-22,5) til að halda hitanum í 10°C í apríl.

Samkvæmt þessu var kostnaður við að halda jarðvegshita í 10 cm dýpt á löglegum fótboltavelli (7.140 m2) í 5°C í marsmánuði að meðaltali 214.000 kr en 378.000 kr ef halda á hitanum í 10°C. Ef haldið var áfram að hita í apríl bættust 36.000 kr við fyrir 5°C og 179.000 kr fyrir 10°C.

Rit Guðna og Svavars, sem og önnur rit LbhÍ, er hægt að nálgast hér.

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image