Verkefnisstjórn opinberu háskólanna

Í verkefnisstjórninni eru: Jón Atli Benediktsson, formaður, rektor Háskóla Íslands, Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar í HÍ, Guðmundur R. Jónsson, framkvæmdastjóri miðlægrar stjórnsýslu í HÍ, Hólmar Erlu Svansson, framkvæmdastjóri HA og Sigríður Geirsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu stefnumörkunar í Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Verkefnisstjórar samstarfsnetsins eru Halldór Jónsson, sviðsstjóri Vísinda- og nýsköpunarsviðs í HÍ og Sæunn Stefánsdóttir, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ. Á myndinni er einnig Guðmundur Kjærnested, sviðsstjóri upplýsingatæknimála í HÍ.

Verkefnisstjórn samstarfsnets opinberu háskólanna fundaði á Hvanneyri

Verkefnisstjórn samtarfsnets opinberu háskólanna kom saman í vikunni á Hvanneyri. Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, tók á móti félögum sínum í verkefnisstjórninni í glæsilegum húsakynnum skólans og kynnti m.a. áherslur í starfi LbhÍ 2019-2024. Í lok fundar var boðið til kynnisferðar um háskólasvæðið og einstaka náttúru þess. Hvanneyri er innan eins af sex svokölluðum Ramsarsvæðum á Íslandi, sem eru alþjóðleg friðlönd fugla og votlendis.

Á dagskrá voru einnig staða og framtíðarþróun Uglunnar, samstarf um nemandakannanir og fjárhagur samstarfsnetsins svo eitthvað sé nefnt. Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, sat sinn fyrsta fund en hún tók nýverið við sem rektor skólans. 

Samstarf opinberu háskólanna hófst með formlegum hætti 2010 en samstarfsnetinu voru sett þau markmið frá upphafi að efla háskólana, kennslu og rannsóknir þeirra, auka hagkvæmni í rekstri og að tryggja háskólastarfsemi víða á landinu. Samstarfið er margþætt. Uglan er sameiginlegt nemendakerfi þeirra og eiga skólarnir í fjölbreyttu samstarfi á sviði kennslu-, gæða- og upplýsingatæknimála. Þeir eiga einnig í samstarfi um akademískt mat, standa saman að nemendakönnunum sem tengist gæðastarfi háskólanna, standa að Kennsluakademíu opinberu háskólanna, deila starfi persónuverndarfulltrúa, námsráðgjafa og þá eiga nemendur skólanna kost að gestanámi með því að taka námskeið við aðra opinbera háskóla. Samstarf skólanna hefur aukist á undanförnum árum og á fundinum í vikunni var m.a. rætt um enn frekari eflingu samstarfsins. 

Í verkefnisstjórninni eru Jón Atli Benediktsson, formaður, rektor Háskóla Íslands, Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor kennslu og þróunar í HÍ, Guðmundur R. Jónsson, framkvæmdastjóri miðlægrar stjórnsýslu í HÍ, Hólmar Erlu Svansson, framkvæmdastjóri HA, og Sigríður Geirsdóttir, sérfræðingur á skrifstofu stefnumörkunar í Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Verkefnisstjórar samstarfsnetsins eru Halldór Jónsson, sviðsstjóri Vísinda- og nýsköpunarsviðs í HÍ, og Sæunn Stefánsdóttir, forstöðumaður Stofnunar rannsóknasetra HÍ. 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image