Vel heppnað fræðaþing - Landsýn 2018
01.03.2018
Mynd sem tengist textanum

Um 150 manns sóttu Landsýn-fræðaþing landbúnaðarins sem fram fór í salnum í Kópavogi 23. febrúar sl.. Að Landsýn standa Hafrannsóknastofnun, Háskólinn á Hólum, Landbúnaðarháskóli Íslands, Landgræðslan, Matís, Matvælastofnun og Skógræktin. Í ár var yfirskrift ráðstefnunnar Aukið virði landafurða en stofnanirnar sjö hafa aðkomu að afurðaframleiðslu og umhverfismálum, hvort sem er í landbúnaði, fiskeldi, annars konar landnýtingu og umhverfismálum. Á ráðstefnunni var fjallað um virði landafurða frá ýmsum sjónarhornum og hlutverk stofnananna í því að tryggja verðmæti afurða og sjálfbæra landnýtingu.

Hér má finna dagskrá með fyrirlesurum og erindum.

Myndir frá ráðstefnunni er að finna á Facebook-síðu LBHÍ.Myndir tók Kristín Edda Gylfadóttir.