• Forsíða
  • Fréttir
  • Varðandi frétt Stundarinnar um málefni LbhÍ sem birtist þann 27. október 2017
Varðandi frétt Stundarinnar um málefni LbhÍ sem birtist þann 27. október 2017
22.12.2017
Mynd sem tengist textanum

„Í ljósi alvarlegra ásakana um ritstuld í minn garð, sem birtust í frétt Stundarinnar, þann 27. október 2017, þá tel ég réttast að eftirfarandi komi fram: Nemandi undir minni leiðsögn, slysaðist til að setja mynd í viðauka í BSc ritgerð sinni án þess að vísa nægjanlega vel til heimilda og ekki í samráði við höfund myndarinnar. Þetta var óviljaverk, sem ég tek fulla ábyrgð á, og hafði téð mynd engin áhrif á loka niðurstöður ritgerðarinnar. Myndin var síðan fjarlægð að ósk höfundar. Ég harma að þetta mál sé til umfjöllunar í fjölmiðlum, enda um einfaldan innanhússmiskilning að ræða sem engan veginn er hægt að kalla ritstuld."

Sæmundur Sveinsson,Rektor Landbúnaðarháskóla Íslands