- Forsíða
- Fréttir
- Stafræn framtíð og möguleikar í landbúnaðar: Dagbjartur Ketilsson kynnti nákvæmnisbúskap fyrir nemendum í búvísindum

Dagbjartur Ketilsson, sölustjóri landbúnaðar hjá Íslyft ehf umboðsaðila John Deere á Íslandi sem sjálfur er búfræðingur frá Landbúnaðarháskóla Íslands heimsótti á dögunum háskólann og hélt ítarlegan fyrirlestur um tæknivæðingu og nákvæmnisbúskap fyrir nemendur í búvísindum.
Nákvæmnisbúskapur hámarkar nýtingu og lágmarkar sóun
Í fyrirlestri sínum fór Dagbjartur yfir hvernig nútíma GPS-búnaður, hlutastjórnun (Section Control) og breytileg skammtastjórn (Variable Rate Application) eru að gerbreyta vinnubrögðum bænda. Með því að nýta staðsetningartækni og rauntímagögn er unnt að koma í veg fyrir skörun við áburðardreifingu, sáningu og úðun.
„Það að geta nýtt Section Control og GPS-stýringar sparar bændum umtalsverða fjármuni. Með því að draga úr skörun um 5% til allt að 28% á óreglulegum túnum lágmörkum við sóun á áburði og efnum, sem skilar sér beint í betri rekstrarafkomu og minni umhverfisáhrifum.“
Dagbjartur Ketilsson, sölustjóri landbúnaðar Íslyft / John Deere
Einnig var farið yfir tækni sem stýrir útskömmtun áburðar eftir jarðvegs- og uppskerukortum. Með því að bera rétt magn áburðar á gróðursæl svæði en minka áburðargjöf þar sem jarðvegur er rýrari eða þar sem jarðvegur getur ekki nýtt heildarskammt fæst meiri og jafnari heildaruppskera án þess að auka heildarnotkun áburðar, kal- eða blautir blettir gefa ekki fulla uppskeru þrátt fyrir fullan skammt áburðar og með réttum búnaði og skráningu er hægt að koma í veg fyrir sóun á efnum á slík svæði.
Gagnasöfnun í skýinu og fjarþjónusta
Dagbjartur sýndi nemendum hvernig nútíma dráttarvélar, eins og tæki frá John Deere sem búin eru JD Link 4G módemi, senda rekstrargögn beint í skýið. Kerfi eins og Operation Center gera bændum kleift að fylgjast með eldsneytiseyðslu, vinnuhraða, mældu flatarmáli og veitt innsýn og ráðgjöf. Kerfin gera tæknimönnum einnig kleift að greina villukóða í fjarlægð og mæta með rétta varahluti á staðinn, sem lágmarkar kyrrstöðu vélar á mikilvægum álagstímum eins og við vorverk eða heyskap. Slíkur búnaður getur dregið úr því að tæknimaður þurfi tvær ferðir til að koma tæki í lag, ein ferð í greiningu bilunnar og sú seinni til að laga vandamálið.
Um Búvísindanám hjá LBHÍ
BS-nám í búvísindum við LBHÍ veitir ítarlega þekkingu á framleiðslugreinum landbúnaðarins, jarðrækt, búfjárrækt, búvélatækni og rekstri búfyrirtækja. Nánari upplýsingar um námið má finna á lbhi.is.