Nýtt rit um sprettu og fóðurgildi íslenskra túngrasa
10.03.2026
Mynd sem tengist textanum

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur gefið út ritið Spretta og fóðurgildi helstu túngrasa á Íslandi (Rit LbhÍ nr. 185). Höfundar ritsins eru Guðni Þorvaldsson, Tryggvi Eiríksson, Rúna Þrastardóttir og Bragi Líndal Ólafsson. Verkefnið var styrkt af Framleiðnisjóði Landbúnaðarins.

Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kortleggja vöxt, þroskaferil og fóðurgildi sex algengra túngrasa hér á landi: vallarfoxgrass, vallarsveifgrass, háliðagrass, túnvinguls, snarrótarpunts og hálíngresis. Mælingar fóru fram á öllum sprettutímanum, frá vori til hausts, bæði í frumvexti og endurvexti. Slík þekking er grundvöllur fyrir hagkvæma nýtingu túna, nákvæmara fóðurmat og gerð fóðuráætlana.

Auk þess að auka þekkingu á vaxtarferli grasanna var markmið verkefnisins að búa til viðamikinn gagnagrunn fyrir NIR-tækni (Near Infrared Reflectance). Sú tækni gerir kleift að framkvæma efnagreiningar á fóðri með mun ódýrari og hraðvirkari hætti en hefðbundnar aðferðir, en hún krefst góðs viðmiðunarsafns sýna sem spanna allan sprettuferilinn líkt og gert var í þessu verkefni.

Smelltu hér til að lesa ritið í heild sinni.