Ráðstefna um Staðaranda á Vesturlandi

Umhverfisskipulagsbraut LbhÍ og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi boða til ráðstefnu um Staðaranda á Vesturlandi þann 4. maí nk. Yfirskrift ráðstefnunar er Innviðir, ímynd og sóknarfæri. Ráðstefnan fer fram í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri frá kl 10.30 til kl 15.15 og eru allir velkomnir. Dagskrá og frekari upplýsingar má finna á umhverfisskipulag.com

„Hver staður er einstakur og hefur sína sál eða anda sem greinir hann frá öðrum.  Á tímum hnattvæðingar þegar hvers kyns straumar og stefnur æða heimshorna á milli á augabragði steðjar ákveðin hætta að anda staðanna.  Stöðluð uppbygging samgöngumannvirkja,  bygginga og opinna svæða gerir það að verkum að ólíkum stöðum  svipar sífellt meira til hvors annars.  Á sama tíma eykst þörfin  á  hinu einstaka, sem ekki finnst annarsstaðar. Sú þörf er jafnt hjá þeim sem heimsækja staðina sem ferðamenn, þeim íbúum sem vilja laða til sín ný atvinnutækifæri og þeim sem leita eftir þráðum sem tengja samfélagið saman.  Í þessu samhengi er staðarvitund er mjög mikilvægt hugtak og mun vægi þess aukast hérlendis á komandi árum fylgi Ísland þeirri bylgju sem farið hefur um nágrannalönd okkar. Góð staðarvitund felst í því að geta greint þau fjölmörgu atriði sem staðarandinn byggir á, skilið samspilið á milli þeirra, metið þá þætti sem draga úr sérkennum og þá þætti sem styrkja þau. Þessi atriði geta átt sér stað í náttúrulegri umgjörð, byggingasögulegri arfleifð og í mannlífinu sjálfu fyrr og nú. Sem dæmi um birtingaform þessa þátta má nefna litasamspil sem má finna bæði í náttúrulegri umgjörð og mannvirkjum. Endurtekningu forma, lykt, viðmóti svo eitthvað sé nefnt“.

Hrafnkell Proppé svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins og Helena Guttormsdóttir lektor LbhÍ

Háskóli Íslands

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image