• Forsíða
  • Fréttir
  • Ráðstefna Orkídeu og LBHÍ um nýsköpun og tækifæri í matvælaframleiðslu
Ráðstefna Orkídeu og LBHÍ um nýsköpun og tækifæri í matvælaframleiðslu
25.08.2022
Nýsköpun og tækifæri í  íslenskri matvælaframleiðslu

Nýsköpun og tækifæri í íslenskri matvælaframleiðslu

Brýnt er að auka matvælaframleiðslu í heiminum verulega á næstu áratugum vegna sífellt vaxandi íbúafjölda heimsins. Í þessu felast miklar áskoranir þar sem stór hluti af nýtanlegu gróðurlendi heimsins er þegar notað í landbúnaðarframleiðslu. Nýtanlegir fiskistofnar eru margir komnir að þolmörkum og vaxandi skortur er á orku og vatni til fæðuframleiðslu.

Í þessum áskorunum felast jafnframt mikil tækifæri fyrir Ísland sem ætlunin er að varpa ljósi á í þessum viðburði sem er samstarfsverkefni Orkídeu, Landbúnaðarháskóla Íslands, Háskóla, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytisins, Háskólans á Bifröst, Íslandsstofu, Lax-inn fræðslumiðstöðvar, Matís, Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins, Samtökum smáframleiðenda matvæla og Ölfus Cluster.

Tími og staður

8. september kl. 9.00-12.15 á Hótel Selfossi. Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá þátttöku, skráning hér

Fundarstjóri: Vigdís Häsler, framkv.stj. Bændasamtaka Íslands. Dagskrá hér að neðan.

Mynd sem tengist textanum