Kennsluforseti Landbúnaðarháskóla Íslands með áhugavert innlegg í Bændablaðinu núna í morgun um nýja tegund náms.
Í grein sinni fjallar Jón Grétar Sigurjónsson um að hefðbundnar námsleiðir, þó mikilvægar séu, duga ekki lengur einar og sér til að mæta öllum þeim þörfum og áskorunum sem samfélagið okkar stendur frammi fyrir. Jón Grétar nefnir meðal annars að fólk í landbúnaði og tengdum greinum vinnur í hraðara og flóknara umhverfi en áður, þar sem ný þekking og nýjar aðferðir verða stöðugt til. Námsleiðir og námsframboð þurfi að taka mið af þessum breytingum.
Grein Jón Grétars má finna á bls. 47 í nýjustu útgáfu Bændablaðsins.





