Nýtt rit: Staða nautakjötsframleiðslu á Íslandi og framtíðarmöguleikar

Ný skýrsla um stöðu nautakjötsframleiðslu á Íslandi og framtíðarmöguleika, er komin út. Höfundur er Þóroddur Sveinsson, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands. Skýrslan er unnin fyrir atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið.

Ágrip:

Á undanförnum tveimur árum varð verulegur samdráttur í nautgripakjötsframleiðslu á Íslandi sem mætt var með auknum innflutningi til að anna eftirspurn. Markaðshlutdeild innlends nautgripakjöts árin 2014 og 2015 var um 70% en árin á undan yfir 90%. Er það að stórum hluta vegna minni veltu á kýrkjöti en einnig á ungnautakjöti. Útlit er fyrir aukið framboð á innlendu kýr- og ungnautakjöti árið 2016 en 2017 mun framboð á ungnautakjöti minnka aftur og óljóst hvernig framboð á kýrkjöti þróast en það ræðst af ástandinu í mjólkurframleiðslu sem erfitt er að spá um.

Markaðurinn gerir stöðugt meiri kröfur um fjölbreytt úrval af ungnautakjöti líkt og þekkist í nágrannalöndunum. Því mega ungnautakjötsframleiðendur búast við harðari samkeppni við innflutt ungnautakjöt í nánustu framtíð, bæði í verði og gæðum. Þegar er hafinn undirbúningur á innflutningi á fósturvísum af holdanautakyninu Angus sem mun bæta stöðu hjarðbænda frá því sem nú er. Ávinningurinn af þessum innflutningi skilar sér þó ekki fyrr en eftir 6 ár. Ungnautakjötsframleiðslan mun áfram líkt og í Evrópu, byggja að stærstum hluta á nautum sem koma úr mjólkurframleiðslunni. Um 75% ungnautakjöts hér á landi kemur frá kúabúum með mjólkurframleiðslu sem aðalbúgrein en með bættum skilyrðum fyrir hjarðeldi með holdanautgripum gæti þetta hlutfall minnkað í nánustu framtíð. Stærstur hluti framleiðslunnar er stíueldi „frá vöggu til grafar“. Kjötframleiðendur utan mjólkurframleiðslu eru mest með hjarðeldi þar sem kálfar ganga undir mæðrum sínum í um 6 mánuði en áframeldið fer fram í stíum líkt og hjá mjólkurframleiðendum. Hjá hjarðbændum er uppistaðan holdablendingar af óljósum uppruna en mest þó blanda af Angus, Galloway og íslenskum nautgripum. Þessir blendingar skila að jafnaði verðmeiri föllum en ungnaut frá mjólkurframleiðendum vegna betri flokkunar en að öðru leyti skera þeir sig ekki úr. Rannsóknir LbhÍ sýna að auðveldlega má bæta flokkun (gæði) ungnauta, bæði blendinga og íslenskra með markvissari fóðrun en nú tíðkast almennt.

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image