Málþing um örplast í skólpi
10.12.2017
Mynd sem tengist textanum

Vatns- og fráveitufélag Íslands, VAFRÍ, og Samorka halda opið málþing um örplast í skólpi. Málþinginu er ætlað að varpa ljósi á þá þekkingu sem til er um málefnið hér á landi, um upptök og afdrif örplasts í skólpi og mögulegum hreinsiaðferðum til verndar lífríkis í viðtaka skólps.

Tími: Þriðjudaginn 15. nóvember kl. 13:30 - 16:00Staðsetning: Húsi Atvinnulífsins, Borgartúni 35

Dagskrá:Eru skólphreinsistöðvar gátt fyrir örplast í hafið?Hrönn Jörundsdóttir, MatísKynning á norrænni rannsóknþar sem losun örplasts frá skólphreinsistöðvunum

Úr plasti, - og hvað svo?Guðjón Atli Auðunsson, Nýsköpunarmiðstöð ÍslandsUm uppsprettur, afdrif og hættur af örplasti í sjó og hvað er til úrbóta.

Mögulegar leiðir varðandi hreinsun og meðhöndlun á örplasti úr skólpi á ÍslandiSigurður Thorlacius, Eflu

Eftir erindin verður opin umræða þar sem þátttakendum gefst kostur á að spyrja spurninga og ræða við fyrirlesara um málefnið. Þar eru allir hvattir til að taka þátt og einnig leggja sína þekkingu á vogaskálarnar.

Kaffiveitingar verða í boði Samorku.

Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. Vinsamlegast skráið þátttöku með því að fylla út könnun hér

Myndin er fengin af vef VAFRÍ