Málstofa um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi
22.05.2026
Mynd sem tengist textanum

Landbúnaðarháskóli Íslands heldur málstofu um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi fimmtudaginn 4. júní kl. 10:00–13:00 á Hvanneyri. Einnig verður streymt frá viðburðinum.

Á málstofunni verður fjallað um nýja skýrslu um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi, lagaumhverfi, þróun eignarhalds og samanburð við reglur í nágrannalöndum. Einnig verður rætt um hlutverk sveitarfélaga, verndun ræktunarlands, skipulagsmál og framtíðarnýtingu landbúnaðarlands.

Atvinnuvegaráðherra flytur ávarp í upphafi málstofunnar. Höfundar skýrslunnar, Torfi Jóhannesson og Ásdís Hlökk Theodórsdóttir kynna helstu niðurstöður hennar undir yfirskriftinni „Hver á Ísland?“. Þá verður kynning frá Landi og skógi á flokkun ræktunarlands á Íslandi.

Að loknum kynningum verða pallborðsumræður undir stjórn Dr. Eyjólfs Guðmundssonar, aðstoðarrektors Landbúnaðarháskólans. Þar verður rætt um hvað niðurstöður skýrslunnar þýða fyrir landbúnað, sveitarfélög, skipulag lands og framtíð dreifbýlis. Þátttakendur í pallborði verða kynntir nánar þegar dagskrá hefur verið fullstaðfest.

Málstofan er opin öllum en óskað er eftir skráningu vegna undirbúnings og veitinga.

Skráning.

Streymi.

Dagskrá

10:00 Ávarp atvinnuvegaráðherra, Hönnu Katrínar Friðriksson

10:15 Hver á Ísland?

Niðurstöður skýrslunnar Eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi

Torfi Jóhannesson og Ásdís Hlökk Theodórsdóttir

10:55 Flokkun ræktunarlands á Íslandi

Kynning frá Landi og skógi

11:10 Pallborðsumræður

Stjórnandi: Eyjólfur Guðmundsson

Þátttakendur verða kynntir nánar þegar dagskrá hefur verið fullstaðfest.

11:55 Samantekt og næstu skref

Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands

12:00–13:00

Léttar veitingar í boði Landbúnaðarháskóla Íslands