Börnin í leikskólanum Andabæ á Hvanneyri litu við í bakgarðinn hjá Landbúnaðarháskólanum að leita sér að hríslum og laufblöðum. Efniviðinn sögðust þau ætla að nýta í föndur á ýmsum listaverkum. Ansi haustlegt er um að litast á Hvanneyri núna og fundu börnin "alveg fullt", eins og einn strákurinn sagði, til að setja í pokann sinn.