Landsýn 2016 verður haldin þann 4. mars
01.03.2016

Ráðstefnan Landsýn - Vísindaþing landbúnaðarins verður haldin á Hvanneyri í Borgarfirði föstudaginn 4. mars 2016, frá klukkan 9.00 til 16.30.
Þeir sem hafa áhuga á að vera með veggspjaldakynningu, vinsamlega sendið upplýsingar þar um, á [email protected] fyrir 24. febrúar. Veggspjöldunum þarf að fylgja ágrip.
Frekari upplýsingar veitir Fanney [email protected]
Að ráðstefnunni standa Matís, Veiðimálastofnun, Landgræðsla ríkisins, Skógrækt ríkisins, Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands.