Landsliðsþjálfarinn afhendir ráðherra nýja skógarbók

Átaksverkefnið Kraftmeiri skógur hefst formlega á laugardaginn í Hótel Örk í Hveragerði.  Af því tilefni mun Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari og skógarbóndi í Svíþjóð afhenda Sigurði Inga Jóhannssyni landbúnaðarráðherra  fyrsta eintakið  af nýrri íslenskri  skógarbók  „Skógarauðlindin – ræktun, umhirða og nýting“. Fundurinn í Hótel Örk hefst kl. 11.30.

Kraftmeiri skógur er fræðsluverkefni sem leggur áherslu á að fjalla um skógrækt sem fjölskyldufyrirtæki og nauðsyn þess að hlúa vel að til að ná árangri.
Þessu nýja verkefni er ætlað að ná til sem flestra skógareigenda á Íslandi með almennri fræðslu, persónulegum heimsóknum, útgáfu á kennsluefni, virkri heimasíðu og endurmenntun.
Grunnhugmynd af Kraftmeiri skógur kemur frá verkefninu Kraftsamling skog í Svíþjóð. Þar hefur verkefnið verið í gangi í þrjú ár og gengið vel. Lars Lagerbäck var einn af þátttakendum í verkefninu þar í landi sem skógareigandi.

Sjá einnig heimasíðuna www.skogarbondi.is

 

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image