• Forsíða
  • Fréttir
  • Kanadíski sendiherrann í heimsókn á starfsstöð Landbúnarháskóla Íslands á Hvanneyri.
Kanadíski sendiherrann í heimsókn á starfsstöð Landbúnarháskóla Íslands á Hvanneyri.
17.04.2026
Mynd sem tengist textanum

Í gær tóku Ragnheiður Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands og Christian Schultze rannsókna- og alþjóðafulltrúi á móti kanadíska sendiherranum á starfsstöð Landbúnarháskóla Íslands á Hvanneyri. Farið var yfir kennslu og rannsóknir Landbúnaðarháskólans og rætt við fleiri starfsmenn háskólans.

Í heimsókninni var komið við á Mið-Fossum, rætt við fulltrúa kennsluskrifstofu, rekstrarsviðs, landslagsarkitektúrs og jarðræktarhóps, auk þess sem gestirnir skoðuðu Landbúnaðarsafnið og kynntust fjölbreyttri starfsemi skólans.

Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna og ánægjulegar samræður.