• Forsíða
  • Fréttir
  • Glæsileg útskriftarhelgi Reiðmannsins – um 250 nemendur útskrifaðir
Glæsileg útskriftarhelgi Reiðmannsins – um 250 nemendur útskrifaðir
27.04.2026
Mynd sem tengist textanum

Tæplega 250 nemendur útskrifuðust úr Reiðmanninum um helgina við hátíðlega athöfn á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla Íslands. Útskriftarhelgin fór fram í glæsilegri aðstöðu skólans á Mið-Fossum í Borgarfirði þar sem fjölbreytt og metnaðarfull dagskrá stóð yfir frá morgni til kvölds.

Reiðmaðurinn er bóklegt og verklegt nám í hestamennsku sem nýtur sívaxandi vinsælda um land allt. Í vetur stunduðu tuttugu og tveir hópar nám á 14 stöðum víðsvegar um landið.

Á laugardag kepptu þeir nemendur til úrslita sem náð höfðu bestum árangri í sínum hópum . Alls tóku fimmtán nemendur þátt í úrslitum í Reiðmanninum I og sjö í Reiðmanninum II. Sýningar voru afar glæsilegar og einkenndust af vönduðum undirbúningi, fagmennsku og góðu samspili knapa og hests.

Reynisbikarhafinn í ár var Björn Ragnar Morthens á hestinum Glófaxa frá Reykjavík. Reynisbikarinn er veittur þeim nemanda á öðru ári Reiðmannsins sem hlýtur hæstu einkunn fyrir lokasýningu sína á útskriftarhelginni. Auk þess hlaut Björn Ragnar viðurkenningu fyrir að vera með hæstu meðaleinkunn úr verklegum prófum í Reiðmanninum II. Í Reiðmanninum I var það Brynja Dís Emilsdóttir sem hlaut viðurkenningu fyrir hæstu einkunn úr verklegum prófum í Reiðmanninum I.

Útskriftardagskrá laugardagsins lauk með útskrift alls 241 nemenda í Reiðmanninum I, II og III, auk Keppnisnáms Reiðmannsins.

Það sem einkenndi helgi sem þessa var fallegur vinskapur, gleði og góð samvera.

Úrslit Reiðmaðurinn I

1. Ilona Johanna Van Baalen á Óvænt frá Hvítanesi

2. Mathilde Larsen á Staka frá Íbishóli

3. Brynja Dís Elmarsdóttir á Mjölni frá Syðra Lágafelli

4. Arnar Ingi Lúðvíksson á Kletti frá Vatni

5. Birta Berg Sigurðardóttir á Kvika frá Neðri-Hrepp

6. Guðmundur Þór Elíasson á Rösk frá Varmalæk 1

7. Jóhanna Huld Eggertsdóttir á Óskanótt frá Stóra Steinsvaði

8. Margrét Ylfa Þorbergsdóttir á Hörpu frá Miklaholti

9. Guðmundur Birgir Kiernan á Stormi frá Söðulsholti

10. Páll Jóhann Pálsson á Dal frá Efri-Brúnavöllum

11. Herborg Sigríður Sigurðardóttir á Sjarmi frá Bjarnarhöfn

12. Íris Huld Sigurbjörnsdóttir á Gusti frá Sykkilshólmi

13. Sigríður Kristín Hafþórsdóttir frá Funa frá Efri Brúnavöllum

14. Efemía Fanney Valgeirsdóttir á Tign frá Daufá

15. Katrín Þrastardóttir á Birti frá Sælukoti

Úrslit Reiðmaðurinn II

1. Björn Ragnar Morthens á Glófaxa frá Reykjavík

2. Helga Björg Helgadóttir á Fjólu frá Þúfu í Landeyjum

3. Ari Sigurðsson á Hugi frá Eystri-Hól

4. Jóna Mjöll Kúld á Hrafni frá Þúfu í Kjós

5. Pétur Ingi Grétarsson á Krónu frá Saurbæ

6. Svanhildur Sigríður Ríkharðs á Þrennu frá Öxnholti

7. Íris Hrönn Rúnarsdóttir Isaksen á Ólsen frá Narfastöðum.

Seinni hluti helgarinnar einkenndist af mikilli keppnisgleði þegar Reiðmannsmótið 2026 fór fram. Mótið, sem er löglegt keppnismót, var haldið í þriðja sinn á nýuppgerðum keppnisvelli á Mið-Fossum.

Veðrið lék við þátttakendur og var þátttaka mikil, með um 120 skráningar. Keppt var bæði á laugardag og sunnudag í fjölbreyttum greinum, þar á meðal tölti, fjórgangi, fimmgangi og flugskeiði.

Nemendur úr öllum stigum námsins tóku þátt, þar á meðal 46 nemendur úr Keppnisnámi Reiðmannsins.

Mótið gekk afar vel og var ljóst að undirbúningur nemenda var til fyrirmyndar - metnaður, fagmennska og gleði einkenndu alla keppni helgarinnar.

Niðurstöður frá úrslitum Reiðmannsmótsins 2026 eru aðgengileg á HorseDay.

Opið er fyrir skráningar í Reiðmanninum I, II og III. Sjá nánari í athugasemd.