
Í gær fékk Landbúnaðarháskóli Íslands góða gesti þegar fulltrúar frá Torsåker Farm og sænska sendiráðinu á Íslandi komu í heimsókn á Hvanneyri. Torsåker Farm er þróunarsetur á vegum Axfoundation sem helgar sig framtíðarlausnum í matvælaframleiðslu, en setrið er staðsett skammt norðan við Stokkhólm í Svíþjóð.
Samstarf og framtíðarsýn rædd
Ragnheiður Þórarinsdóttir, rektor LBHÍ, tók á móti hópnum ásamt Eyjólfi Guðmundssyni deildarforseta, Hlyni Óskarssyni prófessor og James Einari Becker kynningarstjóra.
Á fundi með gestunum var farið yfir fjölbreytta starfsemi beggja aðila. Sérstök áhersla var lögð á að ræða mögulega samstarfsfleti milli LBHÍ og Torsåker Farm, en bæði setrin leggja mikla áherslu á nýsköpun, sjálfbærni og þróun í landbúnaði og matvælavinnslu.
Kynnisferð um skólasvæðið
Eftir gagnlegar umræður var haldið í stutta skoðunarferð um skólasvæðið á Hvanneyri þar sem gestirnir fengu að kynnast umhverfi skólans og aðstöðu af eigin raun.
Landbúnaðarháskólinn þakkar gestunum kærlega fyrir komuna og þær líflegu og hvetjandi umræður sem áttu sér stað í heimsókninni.