Fréttatilkynning frá starfsfólki Landbúnaðarháskóla Íslands

Starfsfólk Landbúnaðarháskóla Íslands mótmælir skefjalausum niðurskurði á starfi LbhÍ og skorar á ríkisstjórn og Alþingi að taka til alvarlegar skoðunar þá fordæmalausu stöðu sem stofnunin hefur verið sett í.  Frá stofnun skólans árið 2005, með sameiningu Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum, hefur starfsfólki fækkað um helming þrátt fyrir fyrirheit um uppbyggingu. 

Ekki sér fyrir endann á niðurskurði og uppsögnum starfsfólks með óvæntum niðurskurði á framlögum frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti um 18 milljónir, til viðbótar við harða endurgreiðslukröfu Alþingis og mennta – og   menningarmálaráðuneytis.  Sú fjölbreytta starfsemi á sviði menntunar og rannsókna á íslenskri náttúru, matvælaframleiðslu og fjölbreyttri nýtingu náttúruauðlinda sem fram fer við skólann á því verulega undir högg að sækja. Kæru ráðamenn þjóðarinnar: Nú er nóg komið.

Starfsfólk LbhÍ

logo

Þekking á sviði sjálfbærrar nýtingar auðlinda, umhverfis, skipulags og matvælaframleiðslu.

LBHÍ

Hvanneyri - 311 Borgarbyggð
Sími 433-5000
lbhi@lbhi.is
Kt. 411204-3590
Rafrænir reikningar
Image

Starfsstöðvar

Flýtileiðir

Samfélagsmiðlar

Image
Image